Umhverfisstefna Faxaflóahafna

[:is]
Faxaflóahafnir sf. eru hafnarfyrirtæki og landeigandi sem leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfismálum og vinna að stöðugum umbótum, m.a. með því að auka umhverfisvitund starfsmanna, viðskiptavina og þjónustuaðila sinna. Starfsemi fyrirtækja og einstaklinga á hafnarsvæðum Faxaflóahafna sf. veitir ákveðin réttindi, en þeim réttindum fylgja einnig skyldur, þar á meðal á sviði umhverfismála, sem mikilvægt er að virða.
Fyrirtækið á og rekur atvinnuhafnir og athafnasvæði og leggur áherslu á að skipulag og starfsemi samræmist skipulagsáætlunum og stefnu eigenda í umhverfismálum.
Faxaflóahafnir hafa einsett sér að innleiða umhverfisstjórnun fyrir rekstur sinn með það að markmiði að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum frá starfseminni. Í því felst að þekkja, vakta, fylgjast með þróun og stýra þýðingarmiklum umhverfisþáttum í rekstri fyrirtækisins og kynna árangur og stöðu þeirra. Sett verður á fót vottað umhverfisstjórnunarkerfi í samræmi við staðalinn ISO 14001. Með þessu mun Faxaflóahafnir bæta stöðugt frammistöðu sína í umhverfismálum.
Í umhverfisstefnu Faxaflóahafna felst að uppfylla viðeigandi kröfur laga og reglugerða sem og framfylgja leiðsögn stjórnvalda og eigenda í umhverfismálum.
Áhersluatriðin í stefnu Faxaflóahafna sf. eru eftirfarandi:
 
1.  Að leggja sitt af mörkum til loftslagsmála
 Loftslagsmál eru ofarlega á baugi og kallað er eftir viðbrögðum til þess að draga úr loftmengun. Í þeim efnum líta Faxaflóahafnir sf. svo á að fyrirtækið verði annars vegar að leggja sitt að mörkum með beinum hætti og hins vegar að skapa aðstæður til þess að viðskiptavinir hafnarinnar geti náð jákvæðum markmiðum. Stefna Faxaflóahafna sf. er:

  • Að draga sem kostur er úr og gæta hagkvæmni í notkun eldsneytis og þar með losun frá eigin starfsemi
  • Að beita sér við að hafa áhrif á og eiga samstarf við eigendur og rekstraraðila til að draga úr umhverfisáhrifum frá þeim.
  • Að vinna að uppbyggingu innviða á hafnarbökkum og stuðla þannig að orkuskiptum viðskiptavina hafnarinnar
  • Að vinna að kolefnisjöfnun með skógrækt, fyrst á eigin landi

2.  Að draga úr áhrifum og hindra skaðlegar afleiðingar mengunar
Sjór á hafnarsvæðum er undir álagi frá skipum og starfsemi á landi og unnið er að mengunarvörnum með áherslu á sjávargæði. Aflað er upplýsinga og þekkingar um mögulega mengun sem tengja má hafnarstarfseminni, þ.á.m. ljós- og hljóðvist; mengun í lofti, s.s. svifryk, sót eða lykt; mengun lands og mengun sjávar.  Brugðist er við niðurstöðum. Stefna Faxaflóahafna sf. er:

  • Að vinna að því að draga úr áhrifum á nágranna og samfélagið umhverfis hafnirnar.
  • Að gera ráðstafanir til taka á þeim þáttum sem Faxaflóahafnir hafa beina stjórn á og finna það framlag sem Faxaflóhafnir geta lagt til ástands sjávar á hafnarsvæðum fyrirtækisins og nágrenni þess.
  • Að beita sér af einurð fyrir því að viðskiptavinir og samstarfssaðilar fylgir kröfum um mengunarvarnir.
  • Að greina mögulegar hættur á mengunarslysum, verjast þeim eftir megni, viðhalda viðbúnaði og viðbragðsáætlunum til að halda afleiðingum og óhöppum í lágmarki. Læra af eigin reynslu og annarra.

3.  Að minnka úrgang og setja í réttan farveg það sem til fellur
 Haldið er saman upplýsingum um úrgang sem fellur til og dregið úr umhverfisáhrifum hans svo sem loftslagsáhrifum. Stefna Faxaflóahafna sf. er:

  • Að leita aðferða og vinnubragða sem ekki leiða til úrgangs, flokka það sem til fellur, þar sem endurnýtanlegu og endurvinnanlegu efni er beint í farveg á hagkvæman hátt
  • Að bæta nýtingu þar sem séð er til þess að ekkert fari til spillis svo sem með virkum efnisbúskap.
  • Að viðhafa örugga spilliefnameðferð.
  • Að sjá til þess að farvegir séu fyrir hendi til að taka við úrgangi frá notendum hafnarinnar og gestum og skila honum í samræmi við lög og reglur.

4.  Að skipulag skili hagrænum ávinningi og virði umhverfissjónarmið
 Höfn er undirstaða byggðar, atvinnu- og efnahagslífs sem skilar samfélaginu ávinningi með hagkvæmni í flutningum og minni umhverfisáhrifum. Flutningamiðstöð í  næsta nágrenni megin markaða styttir flutningaleiðir og dregur úr loftslagsáhrifum.  Stefna Faxaflóahafna er:

  • Að vinna skipulag með hliðsjón af ávinningi fyrir samfélagið og fyrirtækið, bæði hagrænum og umhverfislegum.
  • Að hafa í huga áhrif á byggð í nágrenninu og sambýli hafnar við nágranna. Ásýnd mannvirkja og frágangur umhverfis sé eins góður og kostur er. Vinna áfram að því að aðgangur og tækifæri séu til útivistar.
  • Að nýta land sem best og bjóða möguleika á atvinnustarfsemi á landi hafnanna, m.a. fyrir matvælastarfsemi, útgerð, iðnaðarstarfsemi og ferðaþjónustu þar sem tekið er tillit til krafna í umhverfismálum.
  • Að skipuleggja umferð innan hafnarsvæða í samvinnu við sveitarfélög og Vegagerðina með tilliti til umhverfisáhrifa.

5.  Að lágmarka umhverfisáhrif framkvæmda
 Vinna skipulega að greiningu á umhverfisáhrifum framkvæmda og undirbúa framkvæmdir með tilliti til þeirra. Stefna Faxaflóahafna sf. er:

  • Að ganga þannig frá málum að ráðgjafar, verktakar og samstarfsaðilar séu meðvitaðir um þær kröfur sem gerðar eru og taki að sér að uppfylla þær.
  • Að fylgja eftir framkvæmdum og sjá til þess að kröfur til umhverfisþátta séu uppfylltar.

6.  Umgengni til fyrirmyndar
 Bæta þarf stöðugt umgengi um hafnarsvæði, hafnarland, strandir, hafnarbakka og sjó. Stefna Faxaflóahafna sf. er:

  • Að framfylgja reglum um umgengni í höfninni, á sjó og við hafnarbakka og tryggja með sem bestum hætti að óhreinindi og mengandi efni berist ekki frá bátum og skipum innan hafnarsvæðanna.
  • Eiga samstarf við leigjendur og lóðarhafa um umgengi og beita áhrifum til að draga úr vinnubrögðum sem hafa óæskileg áhrif á nágrennið.
  • Að skipuleggja umhirðu um svæðin þ.á.m. verjast ágangi dýra, sem valda óhreinindum og óþægindum.

7.  Umhverfissjónarmiðum fylgt við afnot af mannvirkjum og aðstöðu
 Skipuleggja afnot af mannvirkjum m.t.t. umhverfissjónarmiða. Stefna Faxaflóahafna sf. er:

  • Sjá til þess að nauðsynlegar veitur séu til staðar á hafnarsvæðum, þannig að kalt vatn, heitt vatn og frárennsli séu fyrir hendi.
  • Að rafmagnstengingar í hafnarbökkum séu fyrir hendi eins og kostur er og séu notaðar.
  • Að gætt sé að því að eldsneytisafhending og móttaka úrgangsolíu sé örugg og umhverfisvæn.

Samþykkt á fundi stjórnar Faxaflóahafna sf.
þann 10. febrúar 2017

Gísli Gíslason, hafnarstjóri

[:]

FaxaportsFaxaports linkedin