Nú er árið 2019 gengið í garð og því gott að fara yfir liðið ár. Faxaflóahafnir sf. hafa gert það að vana sínum að halda utan um yfirlit um skipakomur, tegundir skipa og stærð þeirra. Á árinu 2018 komu samtals 1.475 skip. Ef við berum tölur ársins 2018 saman við tölur 2017, þá var fækkun um 41 skipakomu milli ára eða rúmlega 3 %. Mest var aukningin á árinu 2018 í komu farþegaskipa eða um rúmlega 12%. Um 4% aukning varð síðan á skipakomum tankskipa og 3 % aukning í rannsóknar- og varðskipa. Hins vegar fækkaði mest í skipakomum annarra skipa ( (þ.e. skútur, snekkjur og skip sem flokkast ekki undir neðangreindar tegundir) eða um rúmlega 22%. Skipakomum fiskiskipa fækkaði um 8 % og flutningaskip um 2 %.

Ef við skoðum hins vegar nánar samtals brúttótonnatölu skipa sem koma til Faxaflóahafna, þá er sjáanlegur munur milli ára. Á árinu 2017 komu skip að stærð 11.218.860 brúttótonn til hafna Faxaflóahafna. Hins vegar varð aukning á árinu 2018, en þá var heildarstærðin kominn upp í 12.143.107 brúttótonn.

Hér að neðan má sjá þróunina á skipakomum frá árinu 2010 til 2018:

a) Fjöldi skipa

b) Samanlögð stærð

c) Skipakomur fyrir árið 2018, sundurliðaðar eftir mánuðum.

FaxaportsFaxaports linkedin