Sjá upplýsingar um viðskiptaskilmála.

Gjaldskrá fyrir skemmtiferðaskip – gildir frá 1. janúar 2026

 

Almenn ákvæði 

  1. gr. 

Gjaldskrá þessi gildir eingöngu um skemmtiferðaskip sem heimsækja hafnir Faxaflóahafna sf. og er sett skv. heimild í 20. gr. hafnalaga nr. 61/2003.

 

Skilgreining hugtaka:

Skemmtiferðaskip: Farþegaskip, eins og það er skilgreint í alþjóðasamningnum um öryggi mannslífa á sjó (SOLAS), sem er hannað, búið og rekið fyrst og fremst til tómstunda- eða afþreyingarferða, þar sem veitt er gisting, veitingaþjónusta, afþreying og önnur þjónusta sem óaðskiljanlegur þáttur farþegaþjónustunnar og sem jafnan sinnir hringferðum eða áætlunarferðum fremur en beinni flutningsþjónustu milli hafna.

Farþegi: Einstaklingur sem ferðast með skemmtiferðaskipi og hefur aðgang að þjónustu skipsins. Áhafnarmeðlimir og annað starfsfólk teljast ekki farþegar í þessum skilningi.

 

Um gjaldtöku tengda stærð skipa

  1. gr.

Við ákvörðun gjalda sem taka mið af stærð skemmtiferðaskipa er miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykkt um mælingu skipa frá 1969.

 

  1. gr.

Af öllum skemmtiferðaskipum skal greiða gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari ef þau koma inn fyrir skilgreind mörk hafna í hafnarreglugerð fyrir Faxaflóahafnir sf. nr. 798/2009 og njóta viðkomandi þjónustu.

 

Skipagjöld

  1. gr.

Lestargjöld:

Af öllum skemmtiferðaskipum skal greiða lestargjald, kr. 20,63 á mælieiningu skv. 2. gr. við hverja komu.

Bryggjugjöld:

Af öllum skemmtiferðaskipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða eftirfarandi bryggjugjald fyrir mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma, sem skip liggur við festar: 

  1. júní til 31. ágúst kr. 12,7
  2. september til 31.maí kr. 9,8

 

Hafnsögugjöld

  1. gr.

Skemmtiferðaskip skulu greiða eftirfarandi hafnsögugjöld:

  1. Fyrir leiðsögu til hafnar, að bólvirki eða lægi, kr. 8,35 fyrir hvert brúttótonn.
    Fyrir leiðsögu frá bólvirki eða lægi og úr höfn greiðist sama gjald.
  2. Fyrir leiðsögu um höfn (færsla skipa), skal greiða hálft gjald samkvæmt lið a.

Lágmarksgjald samkvæmt þessum liðum er kr. 45.974.

Frestist brottför eða færsla skips án þess að tilkynning um það hafi borist a.m.k. 2 klst. áður, er heimilt að innheimta til viðbótar lágmarks hafnsögugjald.


Þjónusta dráttarbáta

  1. gr.

Við komu og brottför skemmtiferðaskipa ákveður hafnsögumaður hve mikil aðstoð dráttarbáta og mannafla er nauðsynleg, með hliðsjón af aðstæðum hverju sinni, sbr. 6. gr. hafnarreglugerðar fyrir Faxaflóahafnir sf.

Skemmtiferðaskipum yfir 15.000 BT er skylt að hafa að lágmarki einn dráttarbát til aðstoðar eða öryggis. 

Fylgi dráttarbátur skipi til öryggis í eða úr höfn er tekið biðgjald. 

Fyrir siglingu dráttarbáts umfram eina klukkustund greiðist fast siglingargjald hvers báts samkvæmt gjaldskrá þessari.

Þegar dráttarbátur aðstoðar skip eða er til staðar öryggisins vegna, fellur gjald fyrir flutning hafnsögumanns til eða frá skipi niður. 

Önnur aðstoð er samkvæmt samningi hverju sinni.

Gjaldskrá dráttarbáta

 

  AðstoðBiðgjaldFast gjaldLágmarkHámarkSiglingFluttur
 Togkrafturkr/BT/klstkr/BT/klstá klstá klstá klstá klsthafnsögum.
Magni85 tonn24,512,25 159.245709.254159.24567.011
Haki40 tonn17,108,6 106.572594.107106.57267.011
Leynir14 tonn17,108,6 67.011481.36567.01167.011
Þjótur6 tonn  67.011   67.011

 


TAFLA


Festargjöld 

  1. gr.

Hafnsögumaður ákveður mannafla eftir aðstæðum hverju sinni samkv. 6. gr. hafnarreglugerðar fyrir Faxaflóahafnir sf. nr. 798/2009.

Fyrir hvern festarmann greiðast kr. 17.041. 

Frestist brottför/færsla skemmtiferðaskips án þess að tilkynning um það hafi borist amk. 2 klst áður, er heimilt að innheimta fullt festargjald á hvern festarmann.

Farþegagjald

  1. gr.

Farþegagjald skal greiða fyrir hvern farþega sem fer um borð eða stígur frá borði skemmtiferðaskips.  Gjaldið er kr. 245 á farþega.  Skipstjóri, umboðsmaður eða eigandi skemmtiferðaskips skal afhenda hafnaryfirvöldum upplýsingar um fjölda farþega við hverja komu og brottför, í samræmi við innsenda Safeseanet skýrslu til innheimtu gjaldsins. Skili  ofangreindir aðilar ekki upplýsingum um farþegafjölda er heimilt að áætla fjölda farþega fyrir viðkomandi tímabil eða leggja á 25% álag ef skil á farþegatölum dragast umfram 20 daga.

  1. gr.

Vatnsgjöld: 

Vatn afgreitt frá bryggju – samkvæmt rennslismæli Faxaflóahafna sf.: 

Kalt vatn kr./m3  468. 

Heitt vatn kr./m3  1.112. 

 Lágmarksgjald við tengingu og aðgang að vatni miðast við 20 tonn.

 

Rafmagnssala fyrir allt að 350A tengingu:

Rafmagnsnotkun kr./kWst.  23,18. 

Lágmarksgjald við tengingu og aðgang að rafmagni miðast við 400 kWst. 

Rafmagnssala fyrir 350A tengingu og yfir:

Rafmagnsnotkun kr./kWst. 57,19

Tengigjald: kr. 117.257

Fyrsta landtenging skemmtiferðaskips í höfnum Faxaflóahafna: kr. 234.514

Fyrsta landtenging skemmtiferðaskips  (e. Commisioning): kr. 703.542

 

Úrgangs- og förgunargjald

  1. gr.

Skipstjóri eða eigandi skips sem óskar eftir að láta á land sorp, farmleifar, olíuleifar eða mengandi efni skal óska eftir aðstoð viðurkennds þjónustuaðila, sem höfnin hefur samþykkt að annist móttöku og förgun á ofangreindum úrgangi frá skipum á hafnarsvæði hafnarinnar. 

Skipstjóri, eigandi skips eða þjónustuaðili skal undantekningalaust skila upplýsingum til hafnarinnar um magn og tegund þess úrgangs sem skilað er á land. Upplýsingum skal skilað rafrænt í gegnum PortMaster.

Vegna skipa sem falla undir grein 11 c. í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33/2004 skal greiða eftirtalin gjöld:

a. Úrgangsgjald: Við komu skips til hafna skal skip greiða 0,54 kr. á brt. Gjald þetta er til þess að standa undir eftirliti og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi. Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 7.522 og hámarksgjald kr. 41.318.

b. Úrgangsgjald: Gjald skv. staflið a. má lækka ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og starfræksla skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð. Fast gjald verður þá 0,27 kr. á brt. Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 7.522 og hámarksgjald kr. 41.318.

c. Úrgangsgjald: Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á almanaksárinu greiða samkvæmt b. lið fyrir fimmtu komu og komur eftir það.

d. Förgunargjald: Við komu til hafnar skulu öll skip sem falla undir 11. grein laga nr. 33 frá 2004 greiða förgunargjald óháð því hvort þau skila úrgangi í land. Förgunargjaldið skal standa á undir förgun á úrgangi sem skilað er á land:

Skemmtiferðaskip skulu greiða 1,42 kr. á brt. Gjaldið miðast við eftirfarandi sorpmagn:

    Skip undir 30.000 brt: 5 m3

    Skip frá 30.000 brt. til 100.000 brt: 10 m3. 

    Skip yfir 100.000 brt: 15 m3

Greiða skal samkvæmt g-lið fyrir sorp umfram ofangreind viðmið.

d. Förgunargjald: Leiti skip til viðurkennds aðila um móttöku á úrgangi getur það fengið álagt förgunargjald skv. d-lið endurgreitt enda skili það áður kvittun móttökuaðilans ásamt réttum upplýsingum um losað magn. Skilyrði endurgreiðslu kostnaðar er að kvittun móttökuaðila hafi borist Faxaflóahöfnum sf. innan tveggja sólarhringa frá brottför skips.

g. Samkvæmt 11. grein laga nr. 1200 frá 2014 getur Umhverfisstofnun veitt skipum í áætlunarsiglingum, sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í hverri höfn á siglingaleiðinni undanþágu frá afhendingu úrgangs.

Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu frá Umhverfisstofnun um afhendingu úrgangs eða skilum á tilkynningum, skal framvísa gildri staðfestingu þess efnis.

Siglingavernd 

  1. gr.

Skemmtiferðaskipum, sem falla undir ákvæði laga um siglingavernd nr. 50/2004, ber að greiða eftirtalin gjöld til Faxaflóahafna sf.: 

Farþegavernd  kr. 312 fyrir hvern farþega. 

Skipavernd kr. 64.042 á hverja komu til hafnar. 

Gjaldið miðast við einn öryggisvörð.

Samkvæmt ISPS reglum er krafa um tvo öryggisverði við skemmtiferðaskip og við farþegaskipti eru þarfir um auka öryggisverði, umfram tvo, metnar hverju sinni. Gjald fyrir öryggisvörð, umfram einn, er innheimt kr. 8.205 á hverja klst.

Fyrir vaktþjónustu við öll skip skal greiða kr. 8.205 á hverja klst.

 

Afbókanir

  1. gr.

Faxaflóahafnir taka við bókunum fyrir skemmtiferðaskip þrjú ár fram í tímann, frá áramótum að telja, en fjögur ár ef um farþegaskipti er að ræða.. 

Við afbókun á komu skemmtiferðaskipa gildir eftirfarandi:  

  • Ef afbókað innan 24 mánaða fyrir áætlaðan komutíma skal greiða afbókunargjald sem er 5% af bryggjugjaldi.
  • Ef afbókað innan 12 mánaða fyrir áætlaðan komutíma skal greiða afbókunargjald sem er 15% af bryggjugjaldi.
  • Ef afbókað innan 6 mánaða fyrir áætlaðan komutíma skal greiða afbókunargjald sem er 30% af bryggjugjaldi.
  • Ef afbókað innan 48 klst. fyrir áætlaðan komutíma skal greiða afbókunargjald sem er 100% af bryggjugjaldi.

 

Undanþegin er afbókun innan 48 klst. fyrir áætlaðan komutíma vegna slæmra veðurskilyrða.

Afbókunargjald leggst ekki á við breytingar á dagsetningu komu til hafnar og/eða skipum svo framarlega sem unnt er að verða við beiðni þar að lútandi.

 

Umhverfiseinkunn (e. Environmental Port Index (EPI))

  1. gr.

Skemmtiferðaskipum ber að skila inn gögnum til mats á umhverfisframmistöðu í höfn eigi síðar en 72 klst. eftir brottför. Á grunni þeirra gagna fær hvert skip EPI einkunn milli 0 (verst) og 100 (best). Skili skip ekki inn gögnum fær það sjálfkrafa 0 einkunn. EPI einkunn veitir að hámarki 30% afslátt af bryggjugjöldum og að hámarki 75% álag. 

Bryggju- og lestargjöld munu taka á sig hlutfallslega breytingu samkvæmt eftirfarandi reiknilíkani:

  • Við EPI einkunn undir 40 (40 – EPI einkunn) * 1,875/100
  • Við EPI einkunn yfir 40: (40 – EPI einkunn) / (2,0 * EPI einkunn)

 

Skipstjóri skips ber ábyrgð á að gögnum sé skilað í gátt EPI. Gátt þar sem gögnum er skilað má finna á:  https://epiwebprod.azurewebsites.net/

 

Aðstöðugjald:

  1. gr.

Öll skemmtiferðaskip í farþegaskiptum er skylt að greiða aðstöðugjald samkvæmt eftirfarandi:.

Farþegamiðstöð

Fyrir afnot af farþegamiðstöð greiðast kr. 1.500.000 fyrir hverja byrjaðar 24 klst.

Fyrir farangursskimun greiðast kr. 351.772 fyrir fyrstu 4 klst. á hvert skimunartæki.

Við farangursskimun er miðað við eitt skimunartæki, óska þarf eftir viðbótar skimunartækjum að minnsta kosti 48 tímum fyrir upphaf skimunar. Fyrir hverja klst. umfram 4 klst. greiðast kr. 105.532.

Fyrir handfarangurs- og farþegaskimun greiðast kr. 2.228 á hvern farþega. 

Fjöldi skimunartækja miðast við neðangreinda töflu.
Ef óskað er eftir viðbótar skimunartæki umfram það greiðast kr. 351.772 fyrir fyrstu 4 klst. á hvert skimunartæki sem bætt er við. Fyrir hverja klst. umfram 4 klst. greiðast kr. 105.532 á hvert skimunartæki.

 

Fjöldi farþega

2 skannar

0 – 1000

3 skannar

1001 – 1500

4 skannar

1501 –  2500

5 skannar

> 2500

 

Skarfabakki 315

Fyrir afnot að farangursaðstöðu greiðast kr. 175.886 fyrir hverja byrjaðar 24 klst.

Fyrir farangursskimun greiðast kr. 351.772 fyrir fyrstu 4 klst. á skimunartækið.
Fyrir hverja klst. umfram 4 klst. greiðast kr. 105.532.

 

Korngarðar

Fyrir afnot að farangursaðstöðu greiðast kr. 175.886 fyrir hverja byrjaðar 24 klst.

Fyrir farangursskimun greiðast kr. 351.772 fyrir fyrstu 4 klst. á skimunartækið.
Fyrir hverja klst. umfram 4 klst. greiðast kr. 105.532.

 

Miðbakki

Fyrir afnot að farangursaðstöðu greiðast 175.886 fyrir hverja byrjaðar 24 klst.

Fyrir farangursskimun greiðast kr. 351.772 fyrir fyrstu 4 klst. á skimunartækið.

Fyrir hverja klst. umfram 4 klst. greiðast  kr. 105.532

 

Faxagarður

Fyrir afnot að farangursaðstöðu greiðast 175.886 fyrir hverja byrjaðar 24 klst.

Fyrir farangursskimun greiðast kr. 351.772 fyrir fyrstu 4 klst. á skimunartækið.

Fyrir hverja klst. umfram 4 klst. greiðast  kr. 105.532

 

 

 Önnur þjónusta

  1. gr.

Landgangar:

Leigutaki greiðir fyrir uppsetningu, niðurtöku, flutning á landgöngum sem og

landgangspöllum kr. 293.143.

Leiga á landgöngum 10 metrum og lengri:  kr. 125.243 fyrir hverja byrjaðar 24 klst.

Leiga á landgangspalli: kr. 125.243 fyrir hverja byrjaðar 24 klst.

 

Fríholt:

Leiga á sérstökum fríholtum til skipa: kr. 58.103 á hvert fríholt, fyrir hverja byrjaðar 24 klst.

Netaðgangur:

Fyrir netaðgang og uppsetningu greiðast kr. 60.974 fyrir hverja tengingu. 

  1. gr.

Mengunarvaldur skal greiða allan kostnað við hreinsun vegna mengunaróhappa  samkvæmt lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. M.a. getur þar verið um að ræða kostnað vegna vinnu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, vinnu starfsmanna Faxaflóahafna sf., kostnaður vegna notkunar á búnaði og nauðsynlegum efnum til hreinsunar.

 

Um innheimtu og greiðslu gjalda

  1. gr.

Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001. 

  1. gr.

Skipstjóri, eigandi, umboðsmaður og umráðamaður skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Faxaflóahafna sf. vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr.326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess, vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda. 

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfn og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

  1. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi. 

Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Faxaflóahöfnum sf. er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til. 

Lóðarleiga á hafnarsvæðum er tryggð með lögveði í viðkomandi lóð.

  1. gr.

Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Faxaflóahöfnum sf. er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

 

Gildistaka.

  1. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Faxaflóahafnir sf. er samþykkt af hafnarstjórn þann 26. september 2025 og, skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004. 

Gjaldskráin öðlast gildi þann 1. janúar 2026 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. 

 

Ákvæði til bráðabirgða:

Bátar sem alfarið eru knúnir rafmagni og notaðir til skipulagðra siglinga með farþega eru undanþegnir bryggju- og lestargjaldi samkvæmt 4. grein til ársloka 2027.

Skip sem knúin eru fljótandi gasi (LNG) á hafnarsvæði skulu til ársloka 2027 fá 15% afslátt af bryggju- og lestargjaldi.



Reykjavík, 26. september 2025.

Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri

FaxaportsFaxaports linkedin