Hátíð hafsins hefur verið haldin hátíðleg í Reykjavík fyrstu helgina í júní ár hvert. Allri skipulagðri skemmtidagskrá Hátíðar hafsins, helgina 5.-6. júní, verður aflýst þetta árið við Grandann og hafnarsvæðið í Reykjavík. Á Hátíð hafsins hafa verið að mæta í kringum 40.000 manns ár hvert um sjómannadagshelgina til að upplifa skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Boðið hefur verið upp á ýmsa fræðslu sem tengist lífríki sjávarins, sjómennsku, verðmætasköpun og öðru er við kemur mikilvægi sjávar- og hafnarstarfsemi. Þar að auki hefur verið skemmtidagskrá með söng og leik fyrir börn á svæðinu. Vegna takmarkana sem nú gilda af heilbrigðisástæðum um návígi fólks verður ekki af hátíðinni, en aðstandendur hennar eru staðráðnir í að taka upp þráðinn á ný að ári með veglegri dagskrá á hafnarsvæðinu.

Sjómannadagsráð höfuðborgarsvæðisins hefur allt frá árinu 1938 gengist fyrir skipulagðri dagskrá á sjómannadaginn með ýmsum föstum dagskrárliðum. Áfram verður stefnt að því að gefa sjómannadeginum þann verðuga sess sem honum ber. Minningarathöfn um sjómenn sem drukknað hafa við störf sín, verður haldin við Minningaröldur Sjómannadagsráðs við Fossvogskirkju þann 6. júní. Athöfnin er úti, hefst kl. 10.00 og er öllum opin.

Að venju verður sjómannamessa tileinkuð Sjómannadeginum og minningu sjómanna í Dómkirkjunni. Messunni verður útvarpað á Rás 1 og hefst kl. 11.00. Hún er opin öllum háð ríkjandi fjöldatakmörkunum vegna sóttvarna.

Vegna sóttvarnaaðgerða verða sjómenn heiðraðir við lokaða athöfn. Þó athöfnin sé eingöngu fyrir boðsgesti þá veður hægt að fylgjast með þar sem henni verður streymt á Facebook síðu Sjómannadagsráðs. Nánari upplýsingar um streymið koma síðar. Önnur hefðbundin hátíðarhöld, s.s. Hátíð hafsins, falla niður.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Garðarsson, framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs í síma 892 1771 og Dagmar Haraldsdóttir verkefnastjóri Hátíðar hafsins í síma 698 8899.

 

FaxaportsFaxaports linkedin