Aðalfundur Faxaflóahafna sf. var haldinn miðvikudaginn 27. júní 2018.  Ársskýrsla fyrir árið 2017 var lögð fram á fundinum en þar að auki var skipuð stjórn fyrir árið 2018. Fyrir þá einstaklinga sem vilja skoða ársskýrslu Faxaflóahafna nánar, þá er hægt að fara inn á vef fyrirtækisins eða þá smella á myndina hér að neðan.

Líkt og áður hefur verið nefnt, þá var á ársfundinum skipuð ný stjórn Faxaflóahafna og er hún úr röðum eftirfarandi fulltrúa eigenda:

Frá Reykjavík
Aðalmenn:
Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Skúli Helgason
Valgerður Sigurðardóttir
Örn Þórðarson
Varamenn:
Sabine Leskopf
Pawel Bartoszek
Magnús Már Guðmundsson
Marta Guðjónsdóttir
Hildur Björnsdóttir

Frá Akraneskaupstað:
Aðalmaður:
Ragnar B. Sæmundsson
Varamaður:
Karitas Jónsdóttir
Áheyrnarfulltrúi:
Ólafur Adolfsson

Frá Hvalfjarðarsveit:
Aðalmaður:
Daníel Ottesen
Varamaður:  
Björgvin Helgason

Frá Borgarbyggð og Skorradalshreppi:
Aðalmaður:  
María Júlía Jónsdóttir
Varamaður:
Lilja Björg Ágústdóttir

Formaður stjórnar kynnti samþykkt stjórnar Faxaflóahafna sf. varðandi umhverfis­viðurkenningu til fyrirtækis á starfssvæði Faxaflóahafna sf., undir nafninu “Fjörusteinninn”. Kristín Soffía Jónsdóttir greindi frá því að stjórnin hefði ákveðið að veita viðurkenninguna til Hafsins öndvegisseturs og tók Dr. Jón Ágúst Þorsteinsson, stjórnarformaður Hafsins öndvegisseturs, við viðurkenningunni fyrir hönd félagins. Nánari umfjöllun um vinningshafa verður gert skil í sér frétt.

 

FaxaportsFaxaports linkedin