Aðalfundur Faxaflóahafna sf. var haldinn föstudaginn 12. júní 2020.  Ársskýrsla fyrir árið 2019 var lögð fram á fundinum en þar að auki var skipuð stjórn fyrir árið 2020. Fyrir þá einstaklinga sem vilja skoða ársskýrslu Faxaflóahafna nánar, þá er hægt að fara inn á vef fyrirtækisins eða þá smella á myndina hér að neðan.

Líkt og áður hefur verið nefnt, þá var á ársfundinum skipuð ný stjórn Faxaflóahafna og er hún úr röðum eftirfarandi fulltrúa eigenda:

Frá Reykjavík

Aðalmenn:
Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Skúli Helgason
Marta Guðjónsdóttir
Örn Þórðarson

Varamenn:
Sabine Leskopf
Pawel Bartoszek
Dóra Björt Guðjónsdóttir
Valgerður Sigurðardóttir
Hildur Björnsdóttir

Frá Akraneskaupstað

Aðalmaður:
Ragnar B. Sæmundsson

Varamaður:
Karitas Jónsdóttir

Áheyrnarfulltrúi:
Ólafur Adolfsson

Frá Hvalfjarðarsveit:

Aðalmaður:
Daníel Ottesen

Varamaður: 
Björgvin Helgason

Frá Borgarbyggð og Skorradalshreppi:

Aðalmaður: 
Magnús Már Snorrason

Varamaður:
Lilja Björg Ágústdóttir

Formaður stjórnar kynnti samþykkt stjórnar Faxaflóahafna sf. varðandi umhverfisviðurkenningu til fyrirtækis á starfssvæði Faxaflóahafna sf., undir nafninu „Fjörusteinninn“. Kristín Soffía Jónsdóttir greindi frá því að stjórnin hefði ákveðið að veita viðurkenninguna til Hörpu og tók Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu, við viðurkenningunni. Nánari umfjöllun um vinningshafa verður gert skil í sér frétt.

Kristín Soffía Jónsdóttir, stjórnarformaður Faxaflóahafna sf.

Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna sf.

Kristín Soffía Jónsdóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna sf., þakkar Gísla Gíslasyni fyrir vel unnin störf í gegnum árin.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur, þakkar Gísla Gíslasyni fyrir vel unnin störf í gegnum árin.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur, þakkar Gísla Gíslasyni fyrir vel unnin störf í gegnum árin.

Árni Hjörleifsson oddviti Skorradalshrepps, þakkar Gísla Gíslasyni fyrir vel unnin störf í gegnum árin.

Árni Hjörleifsson oddviti Skorradalshrepps, þakkar Gísla Gíslasyni fyrir vel unnin störf í gegnum árin.

Kristín Soffía Jónsdóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna afhendir umhverfisverðlaun Faxaflóahafna til Svanhildar Konráðsdóttur forstjóra Hörpu.

Svanhildur Konráðsdóttirr forstjóri Hörpu þakkar Faxaflóahöfnum fyrir viðkenninguna.

Kristín Soffía Jónsdóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna, Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna og Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu.

FaxaportsFaxaports linkedin