Aðalfundur Faxaflóahafna sf. var haldinn föstudaginn 25. júní 2021.  Ársskýrsla fyrir árið 2020 var lögð fram á fundinum en þar að auki var skipuð stjórn fyrir árið 2021. Fyrir þá einstaklinga sem vilja skoða ársskýrslu Faxaflóahafna nánar, þá er hægt að fara inn á vef fyrirtækisins eða þá smella á myndina hér að neðan.

Líkt og áður hefur verið nefnt, þá var á ársfundinum skipuð stjórn Faxaflóahafna og er hún úr röðum eftirfarandi fulltrúa eigenda:

Frá Reykjavík
Aðalmenn:
Kristín Soffía Jónsdóttir, formaður
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Skúli Helgason
Marta Guðjónsdóttir
Örn Þórðarson
Varamenn:
Sabine Leskopf
Pawel Bartoszek
Dóra Björt Guðjónsdóttir
Valgerður Sigurðardóttir
Hildur Björnsdóttir

Frá Akraneskaupstað
Aðalmaður:
Ragnar B. Sæmundsson
Varamaður:
Karitas Jónsdóttir
Áheyrnarfulltrúi:
Ólafur Adolfsson 

Frá Hvalfjarðarsveit:
Aðalmaður:
Daníel Ottesen
Varamaður: 
Björgvin Helgason

Frá Borgarbyggð og Skorradalshreppi:
Aðalmaður: 
Magnús Már Snorrason
Varamaður:
Lilja Björg Ágústdóttir

Formaður stjórnar kynnti samþykkt stjórnar Faxaflóahafna sf. varðandi umhverfisviðurkenningu til fyrirtækis á starfssvæði Faxaflóahafna sf., undir nafninu „Fjörusteinninn“. Kristín Soffía Jónsdóttir greindi frá því að stjórnin hefði ákveðið að veita viðurkenninguna til Krónunar og tók Ásta Sigríður Fjeldsted framkvæmdarstjóri fyrirtækisins við viðurkenningunni ásamt tveimur starfsmönnum. Nánari umfjöllun um vinningshafa verður gert skil í sér frétt.

Magnús Baldursson fundarstjóri aðalfundar Faxaflóahafna.

 

Magnús Þór Ásmundsson, hafnarstjóri Faxaflóahafna.

 

Kristín Soffía Jónsdóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna afhendir umhverfisverðlaun Faxaflóahafna til Ástu Sigríðar Fjeldsted, framkvæmdastjóra Krónunnar.

 

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur

 

Árni Hjörleifsson oddviti Skorradalshrepps

FaxaportsFaxaports linkedin