Bækistöð Faxaflóahafna var rétt í þessu að setja upp eimreiðina Minør á Miðbakka. Eimreiðin er yfirleitt sett upp í kringum sumardaginn fyrsta og tekin niður í kringum fyrsta vetrardag. Í ár eru 105 ár liðin síðan eim­reiðarnar Minør og Pioner luku verki sínu við gerð Gömlu hafnarinnar.  Eimreiðin Minør hefur ávallt verið í vörslu Faxaflóahafna yfir vetrartímann á meðan eimreiðin Pioner hefur verið varðveitt allt árið í kring á Árbæjarsafni. Eimreiðarnar voru keyptar hingað til lands vegna hafn­ar­gerðar.  Þar að auki var járn­braut lögð frá Öskju­hlíð að Reykja­vík­ur­höfn og síðar einnig frá Skóla­vörðuholt­inu.

Meðfylgjandi eru nokkar myndir sem teknar voru í dag við uppsetningu eimreiðarinnar.

Ljósmynd: Jóhann Páll Guðnason

Ljósmynd: Jóhann Páll Guðnason

Ljósmynd: Jóhann Páll Guðnason

Ljósmynd: Jóhann Páll Guðnason

 

Ljósmynd: Jóhann Páll Guðnason

FaxaportsFaxaports linkedin