Eldar Ástþórsson hefur verið ráðinn markaðs- og samskiptastjóri Faxaflóahafna. Hann hefur þegar hafið störf.

Eldar kemur til Faxaflóahafna frá CCP þar sem hann starfaði að kynningar- og markaðsmálum í yfir áratug, síðustu ár sem aðal vörumerkjastjóri eða Senior Brand Manager. Hann hefur auk þess leitt markaðs- og kynningarstörf hjá Iceland Airwaves, nýsköpunarfyrirtækinu Gogoyoko og Forlaginu. Eldar er með diplómu í samskiptum og stafrænni miðlun frá Academia í Gautaborg og meistaragráðu í viðskiptastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.

“Hafnir eru drifkraftur mannlífs, menningar og viðskipta – og ég hlakka til að taka þátt í þeim áskorunum sem eru framundan hjá Faxaflóahöfnum. Ný farþegamiðstöð á Skarfabakka opnar í vor nýja gátt erlendra ferðamanna að höfuðborginni með tilheyrandi tækifærum fyrir íslenska ferðaþjónustu. Áhersla Faxaflóahafna á nýsköpun, skilvirkni og áframhaldandi rafvæðingu hafna verður í aðalhlutverki við sköpun nýrra viðskiptatækifæra og við að mæta áfram fjölbreyttum þörfum samfélagsins, umhvefisins og atvinnulífsins” segir Eldar Ástþórsson

Faxaflóahafnir reka umfangsmestu hafnir landsins á starfsvæðum sínum í Reykjavík, Akranesi, á Grundartanga og í Borgarnesi. Félagið tengir stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin með öruggum, grænum og skilvirkum höfnum. Um 80 manns starfa hjá fyrirtækinu sem leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum og er í vegferð að þróa snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar.

FaxaportsFaxaports linkedin