
Faxaflóahafnir hafa gengið til liðs við Evrópsku samtökin um landtengingu raforku – European Onshore Power Supply Association (EOPSA), evrópsk samtök sem vinna að því að efla notkun landtengingar rafmagns (onshore power supply) í höfnum álfunnar. Aðildin er mikilvægt skref í áframhaldandi vegferð Faxaflóahafna við að þróa og stafrækja snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar.
Með aðild að EOPSA styrkja Faxaflóahafnir þátttöku sína í alþjóðlegu samstarfi um rafvæðingu hafna, miðlun þekkingar og mótun sameiginlegra staðla. Aðildin veitir aðgang að víðtæku tengslaneti hafna, sérfræðinga, nýsköpunar- og orkufyrirtækja, stjórnvalda og frjálsra félagasamtaka sem vinna að innleiðingu landtenginga um alla Evrópu.
Aðildin fellur vel að framtíðarsýn og hlutveki Faxaflóahafna um að bæta lífsgæði á Íslandi með því að reka öruggar, grænar og skilvirkar hafnir sem tengja stærsta markaðs- og atvinnusvæði landsins við umheiminn og miðin.
