Faxaflóahafnir sf munu frá og með 1. september 2021 eingöngu taka við reikningum á rafrænu formi frá birgjum vegna vöru og þjónustu.

Opnuð hefur verið gátt á vef Faxaflóahafna, þar sem þeir viðskiptavinir, sem ekki geta sent rafræna reikninga úr sínum bókhaldskerfum geta skráð sig inn og sent inn reikninga rafrænt í gegnum þá gátt.

Kostir rafrænna reikninga eru ótvíræðir, þeir tryggja hraðari móttöku, rétta skráningu og bókun reikninga sem aftur tryggir réttar greiðslur á réttum tíma. Þá einfalda þeir til muna afstemmingu viðskiptareikninga og kostnaður við útsendingu þeirra er lægri en á reikningum á pappír.
Rafrænir reikningar eru umhverfisvænir og Faxaflóahafnir leggja mikla áherslu á græn skref og umhverfisvænar lausnir og vilja vera í fararbroddi í þeim efnum. Ávinningur allra í ferlinu er því mikill.

FaxaportsFaxaports linkedin