Á síðustu dögum hófust framkvæmdir í Gömlu höfninni, annars vegar við Fiskislóð og hins vegar við Verbúðarbryggju.

Hafin  er vinna við gerð hjólastígs á Fiskislóð að norðanverðu sem mun ná frá hringtorgi við Ánanaust að Hólmaslóð.
Áætluð verklok er 15. desember 2021.  Hjólastígur var hannaður af Mannvit verkfræðistofu og verktakinn er Klapparverk ehf.

Hafin er endurnýjun á Verbúðarbryggju 3 sem stendur næst Sjóminjasafninu. Gamla bryggjan verður rifin og ný harðviðarbryggja byggð í hennar stað. Betri lýsing og varanlegar tengingar settar á bryggjuna fyrir Óðinn og Magna.

Gert er ráð fyrir að verkinu ljúki vorið 2022. Bryggjan er höfnnuð af Eflu verkfræðistofu og verktaki er Aðalvík ehf.

FaxaportsFaxaports linkedin