Í dag var fiskmarkaður opnaður á ný á Akranesi.  Fyrsti aflinn sem boðinn verður upp er afli af Eskey ÓF–80 sem gerir nú út frá Akranesi á vorvertíðinni. Fiskmarkaðurinn opnar í samstarfi við Fiskmarkað Snæfellsbæjar og verður starfræktur að Faxabraut 5.  Undirbúningur hefur staðið yfir undanfarnar vikur og mikið gleðiefni að starfsemi fiskmarkaðar sé hafin að nýju.
Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraneskaupstaðar:  „Það er afar mikilvægt að fiskmarkaður sé að opna á ný á Akranesi.  Við ætlum okkur að snúa vörn í sókn í útgerð á Akranesi.  Bæjarstjórn Akraness hefur lagt á það áherslu að útgerð og fiskvinnsla verða áfram stór þáttur í atvinnustarfsemi á Akranesi og er rekstur fiskmarkaðar grunnstoð í þeirri áherslu.  Skammt frá Akranesi eru gjöful fiskimið og það er okkar að nýta þau tækifæri sem felast í því.  Það er sérstaklega ánægjulegt að finna að þrátt fyrir mótbyr þá hefur verið einhugur hjá einstaklingum í útgerð og vinnslu sem og hjá Faxaflóahöfnum að fiskmarkaður verði starfræktur á ný á Akranesi.“
Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna:  „Fyrir framtíðar umsvif Akraneshafnar sem fiskihafnar er starfsemi fiskmarkaðar á Akranesi lykilatriði.  Það er ánægjulegt að öflugir heimamenn í samstarfi við fiskmarkað Snæfellsbæjar hafa fundið flöt á samstarfi sem vonandi verður gjöfult og farsælt fyrir þá sem nú koma að málum.  Í Akraneshöfn er afbragðs aðstaða fyrir útgerðaraðila til að landa fiski og mikil tækifæri í fiskvinnslu, í nýsköpun, í verkefnum tengdum ferðaþjónustu, starfsemi veitingahúsa og fleira.  Ég hef þá trú að með því skrefi að tryggja starfsrækslu fiskmarkaðar verði nú hægt að sækja fram á fleiri sviðum.“

Myndir teknar af netinu. Ljósmyndari: Sædís Alexía Sigurmundsdóttir

Myndir teknar af netinu. Ljósmyndari: Sædís Alexía Sigurmundsdóttir

Myndir teknar af netinu. Ljósmyndari: Sædís Alexía Sigurmundsdóttir

FaxaportsFaxaports linkedin