Eimreiðin Minør er vanalega sett upp í kringum sumardaginn fyrsta og tekin niður fyrsta vetrardag. Það verða hins vegar breytingar á því fyrirkomulagi þetta árið þar sem framkvæmdir eru nú í gangi við Hvalinn á Miðbakka. Eimreiðin verður sett upp þegar nær dregur sumri.

Í ár eru 103 ár liðin síðan eim­reiðarnar Minør og Pioner luku verki sínu við gerð Gömlu hafnarinnar.  Eimreiðin Minør hefur ávallt verið í vörslu Faxaflóahafna yfir vetrartímann á meðan eimreiðin Pioner hefur verið varðveitt allt árið í kring á Árbæjarsafni. Eimreiðarnar voru keyptar hingað til lands vegna hafn­ar­gerðar.  Þar að auki var járn­braut lögð frá Öskju­hlíð,  Kringlumýri og Skóla­vörðuholt­inu.

17902788_10154836011580432_1405859113_o

Minor-eimreiðin með fjölda vagna á Grandagarði. Verkamenn ganga á sliskjum meðfram brautinni en verið er að hvolfa úr nokkrum vögnum til vesturs. Örfirisey í baksýn. 

FaxaportsFaxaports linkedin