Eftirlitsskip danska sjóhersins, Vædderen F359, kom til Reykjavíkur í gær, 15. júlí, þar sem það landtengdist rafmagni við Faxagarð. Um er að ræða fyrsta skipti sem herskip nýtir sér landtengingu í höfnum Faxaflóahafna, og markar þetta tímamót og raungerist nú í kjölfar samstarfs milli Faxaflóahafna og danska flotans. Þetta er jafnframt mikilvægt skref í átt að markmiði hafnarinnar um að gera öllum skipum kleift að landtengjast.

Faxaflóahafnir munu áfram þróa innviði hafnarinnar með áherslu á öryggi, umhverfi og skilvirkni og þannig efla þjónustu hafnarinnar enn frekar. Markmiðið er að landtengingar geti nýtst fjölbreyttum tegundum skipa í framtíðinni.

 

FaxaportsFaxaports linkedin