Almenn ákvæði
  1. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Faxaflóahafnir sf. er sett skv. heimild í 20. grein hafnalaga nr. 61/2003 sbr. 19. grein sömu laga.

Um gjaldtöku tengda stærð skipa

  1. gr.

Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.

  1. gr.

Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir skilgreind mörk hafnanna samkvæmt hafnarreglugerð og njóta þjónustu þeirra.

Skipagjöld

  1. gr.

Lestargjöld:

Af öllum skipum skal greiða lestargjöld, kr. 16,90 á mælieiningu skv. 2. gr. við hverja komu.

Lágmarksgjald er kr. 25.000.

Bryggjugjöld:

Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftirfarandi:

Skip minni en 30.000 BT kr. 8,30  á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma, sem skip liggur við festar og skip stærri en 30.000 BT kr. 11,90 á mælieiningu fyrir hverja 24 tíma, sem skip liggur við festar.

Bryggjugjöld skipa sem eru 50.000 BT og stærri skulu eftir fyrstu 24 tímana miðast við hverja byrjaða 12 tíma sem skipið liggur við festar.

Bátar undir 100 BT:

Lestar- og bryggjugjöld af fiskiskipum og minni bátum (20 – 100 BT.), er mánaðargjald, kr. 12.122 á mánuði.

Bátar minni en 20 BT greiða kr. 6.977 á mánuði.

Gjald fyrir einkalegu við flotbryggju skal vera kr. 14.277 á mánuði. Gjald fyrir heilsárs einkalegu samkvæmt samningi skal vera kr. 145.605. Heimilt er að gera sérstakan samning um greiðslu vegna einkaviðlegu báta í atvinnustarfsemi.

Gjald fyrir legu gestaskútu við flotbryggju skal vera kr. 13.855 eða 100 evrur á viku.

Heimilt er að leggja á allt að fimmföld bryggjugjöld á skip og báta sem liggja um lengri tíma við bryggju og hafa verið án haffærisskírteinis í a.m.k. 6 mánuði.

Heimilt er að leggja þreföld bryggjugjöld á skip og báta sem óska eftir langtíma viðlegu vegna annarrar starfsemi en útgerðar.

 

Viðlegugjald og afnotagjald í Suðurbugt

Ferðaþjónustuaðilar með viðlegu í Suðurbugt og afnot söluhúsa við Ægisgarð samkvæmt sérstökum samningi greiða fyrir þá aðstöðu með eftirfarandi hætti:

  • Fyrir einkalegu báts í ferðaþjónustu á úthlutuðu viðlegusvæði greiðist mánaðargjald kr. 5.900 per lengdametra en lágmarksgjald er 50.000.
  • Fyrir afnot söluhúsa greiðast mánaðarlega kr. 1.260 á hvern fermetra.

 

Vörugjöld

  1. gr.

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan skilgreindra marka hafnanna, þó með þeim undantekningum er síðar getur. Farmflytjandi skal skila farmskrá og öðrum nauðsynlegum gögnum til Faxaflóahafna sf. vegna álagningar vörugjalda innan 5 virkra daga frá komu eða brottfarar skips.

  1. gr.

Fyrir vörugáma (opna og lokaða) sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarra hafna, vegna milliflutninga, framhaldsflutninga eða strandflutninga, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Gjaldið miðast við hverja 20 feta gámaeiningu þannig að 40 feta gámur tekur tvöfalt grunngjald.  Farmflytjandi skal skila farmskrá, upplýsingum um fjölda og stærð gáma og öðrum nauðsynlegum gögnum til Faxaflóahafna sf. vegna álagningar vörugjalda innan 5 virkra daga frá komu eða brottfarar skips. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna bilunar eða skemmda á skipi.

  1. gr.

Þessar vörur eru undanþegnar vörugjaldi:

  • Umbúðir, svo sem tómir gámar, tóm fiskikör, tankar o.fl., sem endursendar eru.
  • Úrgangur frá skipum sem fluttur er til eyðingar.
  1. gr.

Vörugjald reiknast eftir þyngd, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða ábyrgðarmaður skips skal láta Faxaflóahöfnum sf. í té afrit af farmskrá. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er látið sannreyna uppgefið vörumagn og flokkun þess.

Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

Aflagjald reiknast af verðmæti afla.

  1. gr.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

Vörugjaldskrá:

  1. fl.: Gjald kr. 343,00 fyrir hvert tonn:

Heilfarmar í lausu efni, sem losað er eða lestað með færiböndum, dælingu eða mokstursvélum svo sem kol, laust korn, salt, sandur, möl, kvarts, málmgrýti og önnur steinefni, vikur, fiskimjöl, þörungamjöl, sement, áburður, súrál, koks, gifs. Úrgangur(brotajárn, pappír, plast og fleira) sem fluttur er til endurvinnslu. Heilfarmar af vökva sem dælt er í land eða um borð í skip svo sem eldsneyti, olíur og lýsi

  1. fl. : Gjald á hverja 20 feta gámaeiningu (TEU) kr. 3.021

Milliflutningar, strandflutningar og framhaldsflutningar: Gámar sem fluttir eru tímabundið á land til framhaldsflutninga innan lands eða til erlendra hafna. Gámar sem merktir eru í farmskrá til framhalds- eða milliflutninga skulu ekki standa lengur á farmsvæðum en í 14 daga.

  1. fl.: Gjald kr. 705,00 fyrir hvert tonn:

Sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, byggingavörur, drykkjarvörur, matvörur, lyf og lækningarvörur, óunnir málmar og timbur, hráefni til iðnaðar, smurningsolíur og veiðarfæri.

  1. fl.: Gjald kr. 1.909,00 fyrir hvert tonn:

Bifreiðar, vélar, tæki og búnaður. Aðrar vörur, sem ekki eru tilgreindar í 1. – 3. fl.

  1. fl.: Aflagjald 1,27%.

Samkvæmt lögum  57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar, skal allur afli vegin á hafnarvog í löndunarhöfn.

Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu, samkv. 17. gr. hafnalaga. Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans.

Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis.

Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað.

Seljandi ber ábyrgð á greiðslu aflagjalds.

Hámarksgjald samkvæmt lið þessum, eða þar sem verðmæti afla liggur ekki fyrir er 7.382 kr. fyrir hvert tonn.

 

Við sölu afla til skyldra aðila skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna skal að lágmarki miðað við skiptaverð verðlagsstofu skiptaverðs.

 

Lágmarksgjald í vörugjaldaflokkum 3 og 4 er kr. 270,00

 

Hafnsögugjöld

  1. gr.

Íslensk skip yfir 60 metrar á lengd og öll erlend skip greiða hafnsögugjöld samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá:

  1. Fyrir leiðsögu til hafnar, að bólvirki eða lægi, kr. 6,35 fyrir hvert brúttótonn. Fyrir leiðsögu frá bólvirki eða lægi og úr höfn greiðist sama gjald.
  2. Fyrir leiðsögu um höfn (færsla skipa) og ef skipstjóri hefur staðfesta undanþágu frá hafnsögu eða hafnsögumaður heimilar við sérstakar aðstæður skipstjóra að sigla til eða frá höfn án hafnsögumanns, skal greiða hálft gjald samkvæmt lið a.

Lágmarksgjald samkvæmt þessum liðum er kr. 35.000.

Skip stærri en 50.000 BT greiða hálft hafnsögugjald eftir þriðju komu til hafnar innan almanaksársins.

Frestist brottför eða færsla skips ítrekað um meira en 30 mínútur frá uppgefnum tíma án þess að tilkynning um það hafi borist a.m.k. 2 klst áður, er heimilt að innheimta lágmarks hafnsögugjald.

 

Þjónusta dráttarbáta

  1. gr.

Skipum yfir 15.000 BT, olíuskipum og skipum með hættulegan farm er skylt að hafa dráttarbát til aðstoðar eða öryggis.

Tímagjald fyrir aðstoð dráttarbátanna Haka og Leynis miðast við brúttóstærð skips, kr. 11,60 á BT en fyrir Magna og Phoenix kr. 17,40 á BT.

Fylgi dráttarbátur skipi til öryggis í eða úr höfn er tekið biðgjald. Tímagjald fyrir biðtíma dráttarbátanna  Haka og Leynis miðast við brúttóstærð skips, kr. 5,80 á BT og fyrir Magna og Phoenix kr. 8,70 á BT.

Fast tímagjald fyrir siglingu og aðstoð dráttarbátsins Þjóts er kr. 50.900 á klukkustund.

Lágmarksgjald á klst. fyrir Magna og Phoenix er kr. 120.000, fyrir Haka kr 80.000 en Leyni kr. 50.900. Hámarksgjald fyrir Magna er kr. 550.000, fyrir Haka kr 450.000 en Leyni kr. 365.000. Lágmarkstími er 1 klst.

Á siglingatíma Magna og Phoenix til eða frá stað umfram eina klukkustund greiðast kr. 120.000 á klst. og kr. 73.300 á klst fyrir Haka. Á samsvarandi siglingatíma Leynis greiðast kr. 50.900 á klst.

Fluttur hafnsögumaður: Fast gjald kr. 50.900.

Aðrir flutningar: Lægsta tímagjald skv. gjaldskrá.

Þegar dráttarbátur flytur hafnsögumann og aðstoðar einnig skipið eða er til öryggis, fellur gjald fyrir flutning hafnsögumanns niður.

Önnur aðstoð er samkvæmt samningi hverju sinni.

 

Festargjöld

  1. gr.

Fyrir hvern festarmann greiðast kr. 12.940.

Frestist brottför/færsla skips ítrekað um meira en 30 mínútur frá uppgefnum tíma án þess að tilkynning um það hafi borist amk 2 klst áður, er heimilt að innheimta fullt festargjald pr. festarmann

Farþegagjald

  1. gr.

Farþegagjald skal greiða af hverjum farþega ferðaþjónustubáta og skemmtiferðaskipa.  Gjaldið er kr. 195,00.  Skipstjóri, umboðsmaður eða eigandi farþegaskips skal afhenda hafnaryfirvöldum upplýsingar um farþegafjölda til innheimtu gjaldsins. Skipstjórar, umboðsmenn eða eigendur þeirra báta sem stunda reglubundna farþegaflutninga skulu skila upplýsingum um farþegafjölda hverrar ferðar mánaðarlega og skal upplýsingum skilað eigi síðar en 10. hvers mánaðar fyrir næstliðinn mánuð. Skili  ofangreindir aðilar ekki upplýsingum um farþegafjölda er heimilt að áætla fjölda farþega fyrir viðkomandi tímabil eða leggja á 25% álag ef skil á farþegatölum dragast umfram 20 daga.

Vatns- og rafmagnssala

  1. gr.

Vatnsgjöld:

Vatn afgreitt frá bryggju – samkvæmt rennslismæli Faxaflóahafna sf.:

Kalt vatn kr./m3  371,00.

Heitt vatn kr./m3  882,00.

Lágmarksgjald miðast við 20 tonn.

Rafmagnssala:

Rafmagnsnotkun kr./kWst.  18,38.

Lágmarksgjald miðast við 400 kWst. Sama á við um hvern tengdan frystigám, sem tengdur er rafmagni.

 

Úrgangs- og förgunargjald

  1. gr.

Skipstjóri eða eigandi skips sem óskar eftir að láta á land sorp, farmleifar, olíuleifar eða mengandi efni skal óska eftir aðstoð viðurkennds þjónustuaðila, sem höfnin hefur samþykkt að annist móttöku og förgun á ofangreindum úrgangi frá skipum á hafnarsvæði hafnarinnar.

Skipstjóri, eigandi skips eða þjónustuaðili skal undantekningalaust skila útfylltu eyðublaði til hafnarinnar um magn og tegund þess úrgangs sem skilað er á land.

Skip sem falla utan gr. 11 c. í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33 frá 2004 skulu greiða þjónustuaðila kostnað vegna móttöku og förgun á úrgangi. Annist höfn móttöku og förgun á almennum úrgangi skal gjald greitt fyrir þjónustuna samkvæmt grein þessari fyrir hvern rúmmetra úrgangs. Annist höfnin móttöku á spilliefnum eða sérstökum úrgangi sem hefur í för með sér kostnaðar umfram förgun á almennu sorpi greiðir viðkomandi aðili þann kostnað sem til fellur.

Vegna skipa sem falla undir grein 11 c. í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33 frá 2004 skulu skip greiða eftirfarandi:

  1. Úrgangsgjald: Við komu skips til hafna skal skip greiða 0,42 kr. á brt. Gjald þetta er til þess að standa undir eftirliti og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi. Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 5.965 og hámarksgjald kr. 32.768.
  2. Úrgangsgjald: Gjald skv. staflið a. má lækka ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og starfræksla skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð. Fast gjald verður þá 0,21 kr. á brt. Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 5.965 og hámarksgjald kr. 32.768.
  3. Úrgangsgjald: Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á almanaksárinu greiða samkvæmt b. lið fyrir fimmtu komu og komur eftir það.
  4. Úrgangsgjald: Skip og bátar sem eru undir 60 metra að lengd, eru ekki hafnsöguskyld og hafa varanlega viðveru í höfnum Faxaflóahafna sf. skulu greiða fast mánaðargjald vegna eftirlits og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi. Mánaðargjaldið skal vera kr. 5.965 á mánuði.
  5. Förgunargjald: Við komu til hafnar skulu öll skip sem falla undir 11. grein laga nr. 33 frá 2004 greiða förgunargjald óháð því hvort þau skila úrgangi í land. Förgunargjaldið skal standa á undir förgun á úrgangi sem skilað er á land:

Farþegaskip yfir 60 metrar á lengd skulu greiða 1,61 kr. á brt. Gjaldið miðast við eftirfarandi sorpmagn:

Farþegarskip undir 30.000 brt: 5 m3

Farþegaskip frá 30.000 brt. til 100.000 brt: 10 m3

Farþegaskip yfir 100.000 brt: 15 m3

Önnur skip skulu greiða 2,10 kr. á brt. Gjaldið miðast við 5 m3 af sorpi.

Greiða skal samkvæmt h-lið fyrir sorp sem fer umfram ofangreinda viðmiðun.

Skip og bátar sem eru undir 60 metrar á lengd og hafa varanlega viðveru í höfnum Faxaflóahafna sf. skulu háðir sérstöku samkomulagi sem m.a. taki á lögum og reglum um skil á sorpi.

Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 36.736.

  1. Förgunargjald: Leiti skip til viðurkennds aðila um móttöku á úrgangi getur það fengið álagt förgunargjald skv. e-lið endurgreitt enda skili það áður kvittun móttökuaðilans ásamt réttum upplýsingum um losað magn. Skilyrði endurgreiðslu kostnaðar er að kvittun móttökuaðila hafi borist Faxaflóahöfnum sf. innan tveggja sólarhringa frá brottför skips.
  2. Samkvæmt 11. grein laga nr. 1200 frá 2014 getur Umhverfisstofnun veitt skipum í áætlunarsiglingum, sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í hverri höfn á siglingaleiðinni undanþágu frá afhendingu úrgangs.

Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu frá Umhverfisstofnun um afhendingu úrgangs eða skilum á tilkynningum, skal framvísa gildri staðfestingu þess efnis.

  1. Skip sem undanþegin eru gjaldskyldu skv. 1. tl. 2. mgr. 17. gr. og 11. grein c-lið laga nr. 33 frá 2004 hafnalaga skulu greiða fyrir móttöku hafnar og förgun á almennu sorpi. Lágmarksgjald hafnar fyrir móttöku á úrgangi er kr. 11.974 á hvern rúmmetra og lágmarksgjald einn rúmmetra. Annist höfnin móttöku á spilliefnum eða sérstökum úrgangi sem hefur í för með sér kostnaðar umfram förgun á almennu sorpi greiðir viðkomandi aðili þann kostnað sem til fellur.

Vigtargjald

  1. gr.

Almenn vigtun kr. 276,00 á tonn.

Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun/löndun kr. 1.714,00.

Skráningargjald á afla sem sjálfstæðir aðilar vigta kr. 3.048,00 á hverja löndun.

 

Þegar unnið er við vigtun um helgar og á milli kl. 20:00 og 07:00 virka daga, skulu skip yfir 100 BT greiða að auki kr. 8.000 fyrir hverja byrjaða klukkustund en bátar undir 100 BT greiða fast gjald kr. 6.000 fyrir hverja löndun.

Lóðagjöld og lóðaleiga

  1. gr.

Almenn regla:

Lóðagjöld eru ákveðin af hafnarstjórn.

Lóðaleiga skal vera hlutfall af lóðarmati hverrar lóðar, sem hafnarstjórn ákveður.

  • Lóðaleiga af lóðum í Reykjavík skal vera 2,15% af lóðarmati
  • Lóðaleiga af lóðum á Grundartanga skal vera 2,35% af lóðarmati
  • Lóðaleiga af farmstöðvum 5 hektara og stærri skal vera 2,00% af lóðarmati.

 

Geymslusvæði:  137,00 kr./m² á mánuði

Skammtímaleigusvæði með bundnu slitlagi: 64 –  kr/m² á mánuði

Skammtímaleigusvæði án bundins slitlags: 33 – kr/m² á mánuði

Lágmarksgjald fyrir geymslusvæði og skammtímaleigu skal vera kr. 15.000 á mánuði.

Fyrir geymslu báta og vagna á upptökusvæði skal greiða sama gjald og fyrir báta undir 100 brt. samkvæmt 4. grein.

 

Siglingavernd

  1. gr.

Skipum, sem falla undir ákvæði laga um siglingavernd nr. 50/2004, ber að greiða eftirtalin gjöld til Faxaflóahafna sf.:

Farþegaskip:

Farþegavernd  247 kr. – pr. farþega.

Skipavernd kr. 50.791 á hverja komu.

Gjaldið miðast við einn öryggisvörð.

Farmskip:

Skipavernd kr. 50.791 hverja komu.

Farmvernd  20,0% álag á vörugjöld.

 

Fyrir vaktþjónustu við öll skip skal greiða kr. 6.508, á klst

 

Önnur þjónusta

  1. gr.

Leiga á landgöngum yfir 10 – 14 metrar:  kr. 71.680 fyrir hverja byrjaða 24 tíma.

Leiga á landgöngum yfir 14 metrar:  kr. 99.328 fyrir hverja byrjaða 24 tíma.

Leiga á landgangspalli: kr. 99.328 fyrir hverja byrjaða 24 tíma.

Leigutaki greiðir kostnað við uppsetningu, niðurtöku og flutning á landgöngum.

Leiga á sérstökum fríholtum til skipa: kr. 46.080 fyrir hverja byrjaða 24 tíma.

 

  1. gr.

Mengunarvaldur skal greiða allan kostnað við hreinsun vegna mengunaróhappa  samkvæmt lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. M.a. getur þar verið um að ræða kostnað vegna vinnu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, vinnu starfsmanna Faxaflóahafna sf., kostnaður vegna notkunar á búnaði og nauðsynlegum efnum til hreinsunar.

Um innheimtu og greiðslu gjalda

  1. gr.

Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

  1. gr.

Skipstjóri, eigandi, umboðsmaður og umráðamaður skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Faxaflóahafna sf. vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr.326/2004 um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef hafnarstjóri krefst þess, vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfn og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

  1. gr.

Vörugjald reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.

Skipstjóra, útgerðarmanni og eiganda skips ber að greiða til hafnar gjöld samkv. 17. gr. hafnalaga 61/2003.

Móttakandi vöru sem kemur til hafnar og sendandi vöru sem flutt er úr höfn greiða gjöld samkv. 9. gr. gjaldskrá þessari.

Ef margir eiga vörur sem fluttar eru með sama skipi skal farmflytjandi sjá um innheimtu á gjöldum  hjá sendanda og móttakanda, eftir því sem við á, og standa höfn skil á þeim

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

  1. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.

Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Faxaflóahöfnum sf. er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

Lóðarleiga á hafnarsvæðum er tryggð með lögveði í viðkomandi lóð.

  1. gr.

Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Faxaflóahöfnum sf. er skylt að innheimta virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt

Gildistaka.

  1. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Faxaflóahafnir sf. er samþykkt af hafnarstjórn þann 20. september 2019 og, skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004.

Gjaldskráin öðlast gildi þann 1. janúar 2020 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.

 

Ákvæði til bráðabirgða:

Bátar sem alfarið eru knúnir rafmagni og notaðir til skipulagðra siglinga með farþega eru undanþegnir bryggju- og lestargjaldi samkvæmt 4. grein til ársloka 2025.

Skip sem knúin eru fljótandi gasi (LNG) á hafnarsvæði skulu til ársloka 2025 fá 15% afslátt af bryggju- og lestargjaldi.

Reykjavík, 21. desember 2020.

Magnús Þór Ásmundsson, hafnarstjóri

FaxaportsFaxaports linkedin