Gjaldskrá Faxaflóahafna sf. – gildir frá 1. janúar 2022

Almenn ákvæði
1. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir Faxaflóahafnir sf. er sett skv. heimild í 20. grein hafnalaga nr. 61/2003 sbr.
19. grein sömu laga.

Um gjaldtöku tengda stærð skipa
2. gr.
Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa
samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um
mælingu skipa frá 1969.

3. gr.
Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir skilgreind mörk
hafnanna samkvæmt hafnarreglugerð og njóta þjónustu þeirra.

Skipagjöld
4. gr.
Lestargjöld:
Af öllum skipum skal greiða lestargjöld, kr. 16,90 á mælieiningu skv. 2. gr. við hverja komu.
Lágmarksgjald er kr. 12.500.

Bryggjugjöld:
Af öllum skipum sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða samkvæmt eftirfarandi:
Skip minni en 30.000 BT kr. 8,30 á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma, sem skip liggur við
festar og skip stærri en 30.000 BT kr. 11,90 á mælieiningu fyrir hverja 24 tíma, sem skip liggur
við festar.
Bryggjugjöld skipa sem eru 50.000 BT og stærri skulu eftir fyrstu 24 tímana miðast við hverja
byrjaða 12 tíma sem skipið liggur við festar.

Bátar undir 100 BT:
Lestar- og bryggjugjöld af fiskiskipum og minni bátum (20 – 100 BT.), er mánaðargjald, kr. 12.122
á mánuði.
Bátar minni en 20 BT greiða kr. 6.977 á mánuði.
Gjald fyrir einkalegu við flotbryggju skal vera kr. 14.277 á mánuði. Gjald fyrir heilsárs einkalegu
samkvæmt samningi skal vera kr. 145.605. Heimilt er að gera sérstakan samning um greiðslu
vegna einkaviðlegu báta í atvinnustarfsemi.
Gjald fyrir legu gestaskútu við flotbryggju skal vera kr. 13.855 eða 100 evrur á viku.
Heimilt er að leggja á allt að fimmföld bryggjugjöld á skip og báta sem liggja um lengri tíma við
bryggju og hafa verið án haffærisskírteinis í a.m.k. 6 mánuði.
Heimilt er að leggja þreföld bryggjugjöld á skip og báta sem óska eftir langtíma viðlegu vegna
annarrar starfsemi en útgerðar.

Viðlegugjald og afnotagjald í Suðurbugt
Ferðaþjónustuaðilar með viðlegu í Suðurbugt og afnot söluhúsa við Ægisgarð samkvæmt
sérstökum samningi greiða fyrir þá aðstöðu með eftirfarandi hætti:
a) Fyrir einkalegu báts í ferðaþjónustu á úthlutuðu viðlegusvæði greiðist mánaðargjald
kr. 5.900 per lengdametra en lágmarksgjald er 50.000.
b) Fyrir afnot söluhúsa greiðast mánaðarlega kr. 1.300 á hvern fermetra. Leigan
breytist á þriggja mán. fresti samkv. breytingum á byggingavísitölu.
c) Tímabundinn afsláttur af viðlegugjöldum samkv. a) lið fyrir rekstrarárið 2022 nemur
25%.

Vörugjöld
5. gr.
Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl,
eða úr einu skipi í annað, innan skilgreindra marka hafnanna, þó með þeim undantekningum er
síðar getur. Farmflytjandi skal skila farmskrá og öðrum nauðsynlegum gögnum til Faxaflóahafna
sf. vegna álagningar vörugjalda innan 5 virkra daga frá komu eða brottfarar skips.

6. gr.
Fyrir vörugáma (opna og lokaða) sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarra hafna,
vegna milliflutninga, framhaldsflutninga eða strandflutninga, en eru látnar á land um
stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Gjaldið miðast við
hverja 20 feta gámaeiningu þannig að 40 feta gámur tekur tvöfalt grunngjald. Farmflytjandi skal
skila farmskrá, upplýsingum um fjölda og stærð gáma og öðrum nauðsynlegum gögnum til
Faxaflóahafna sf. vegna álagningar vörugjalda innan 5 virkra daga frá komu eða brottfarar skips.
Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna bilunar eða
skemmda á skipi.

7. gr.
Þessar vörur eru undanþegnar vörugjaldi:
– Umbúðir, svo sem tómir gámar, tóm fiskikör, tankar o.fl., sem endursendar eru.
– Úrgangur frá skipum sem fluttur er til eyðingar.

8. gr.
Vörugjald reiknast eftir þyngd, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir
farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða ábyrgðarmaður skips skal láta
Faxaflóahöfnum sf. í té afrit af farmskrá. Þyki hafnarstjóra ástæða til getur hann hvenær sem er
látið sannreyna uppgefið vörumagn og flokkun þess.
Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund
sem hæst gjald skal greiða af. Aflagjald reiknast af verðmæti afla. 

9. gr.
Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar
segir:

Vörugjaldskrá:
1. fl.: Gjald kr. 354 fyrir hvert tonn:
Heilfarmar í lausu efni, sem losað er eða lestað með færiböndum, dælingu eða mokstursvélum
svo sem kol, laust korn, salt, sandur, möl, kvarts, málmgrýti og önnur steinefni, vikur, fiskimjöl,
þörungamjöl, sement, áburður, súrál, koks, gifs. Úrgangur(brotajárn, pappír, plast og fleira) sem
fluttur er til endurvinnslu. Heilfarmar af vökva sem dælt er í land eða um borð í skip svo sem
eldsneyti, olíur og lýsi

2. fl. : Gjald á hverja 20 feta gámaeiningu (TEU) kr. 3.118
Milliflutningar, strandflutningar og framhaldsflutningar: Gámar sem fluttir eru tímabundið á land
til framhaldsflutninga innan lands eða til erlendra hafna. Gámar sem merktir eru í farmskrá til
framhalds- eða milliflutninga skulu ekki standa lengur á farmsvæðum en í 14 daga.

3. fl.: Gjald kr. 728 fyrir hvert tonn:
Sjávarafurðir, landbúnaðarafurðir, byggingavörur, drykkjarvörur, matvörur, lyf og
lækningarvörur, óunnir málmar og timbur, hráefni til iðnaðar, smurningsolíur og veiðarfæri.

4. fl.: Gjald kr. 1.970 fyrir hvert tonn:
Bifreiðar, vélar, tæki og búnaður. Aðrar vörur, sem ekki eru tilgreindar í 1. – 3. fl.

5. fl.: Aflagjald 1,27%.
Samkvæmt lögum 57/1996 um umgengni um nytjastofna sjávar, skal allur afli vegin á hafnarvog
í löndunarhöfn.
Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu, samkv. 17. gr. hafnalaga. Gjaldið reiknast af
heildarverðmæti aflans.
Gjald af frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis.
Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér
stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Aflagjaldið fellur í gjalddaga
um leið og afla er landað.
Seljandi ber ábyrgð á greiðslu aflagjalds.
Hámarksgjald samkvæmt lið þessum, eða þar sem verðmæti afla liggur ekki fyrir er 7.618 kr. fyrir
hvert tonn.
Við sölu afla til skyldra aðila skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og
úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna skal að lágmarki miðað við skiptaverð verðlagsstofu
skiptaverðs.
Lágmarksgjald í vörugjaldaflokkum 3 og 4 er kr. 280

Hafnsögugjöld
10. gr.
Íslensk skip yfir 60 metrar á lengd og öll erlend skip greiða hafnsögugjöld samkvæmt eftirfarandi
gjaldskrá:
a) Fyrir leiðsögu til hafnar, að bólvirki eða lægi, kr. 6,55 fyrir hvert brúttótonn. Fyrir leiðsögu frá
bólvirki eða lægi og úr höfn greiðist sama gjald.
b) Fyrir leiðsögu um höfn (færsla skipa) og ef skipstjóri hefur staðfesta undanþágu frá hafnsögu
eða hafnsögumaður heimilar við sérstakar aðstæður skipstjóra að sigla til eða frá höfn án
hafnsögumanns, skal greiða hálft gjald samkvæmt lið a.
Lágmarksgjald samkvæmt þessum liðum er kr. 36.120.
Frestist brottför eða færsla skips ítrekað um meira en 30 mínútur frá uppgefnum tíma án þess að
tilkynning um það hafi borist a.m.k. 2 klst áður, er heimilt að innheimta lágmarks hafnsögugjald.

Þjónusta dráttarbáta
11. gr.
Hafnsögumaður ákveður notkun báta og mannafla eftir aðstæðum hverju sinni samkv. 6.gr.
hafnarreglugerðar.
Skipum yfir 15.000 BT, olíuskipum og skipum með hættulegan farm er skylt að hafa dráttarbát
til aðstoðar eða öryggis.
Fylgi dráttarbátur skipi til öryggis í eða úr höfn er tekið biðgjald.
Þegar dráttarbátur flytur hafnsögumann og aðstoðar einnig skipið eða er til öryggis, fellur gjald
fyrir flutning hafnsögumanns niður.
Önnur aðstoð er samkvæmt samningi hverju sinni.

 

 

 

 

 

Festargjöld
12. gr.
Hafnsögumaður ákveður mannafla eftir aðstæðum hverju sinni samkv. 6.gr. hafnarreglugerðar.
Fyrir hvern festarmann greiðast kr. 13.350.
Frestist brottför/færsla skips ítrekað um meira en 30 mínútur frá uppgefnum tíma án þess að
tilkynning um það hafi borist amk 2 klst áður, er heimilt að innheimta fullt festargjald pr.
festarmann

Farþegagjald
13. gr.
Farþegagjald skal greiða af hverjum farþega ferðaþjónustubáta og skemmtiferðaskipa. Gjaldið
er kr. 201. Skipstjóri, umboðsmaður eða eigandi farþegaskips skal afhenda hafnaryfirvöldum
upplýsingar um farþegafjölda til innheimtu gjaldsins. Skipstjórar, umboðsmenn eða eigendur
þeirra báta sem stunda reglubundna farþegaflutninga skulu skila upplýsingum um farþegafjölda
hverrar ferðar mánaðarlega og skal upplýsingum skilað eigi síðar en 10. hvers mánaðar fyrir
næstliðinn mánuð. Skili ofangreindir aðilar ekki upplýsingum um farþegafjölda er heimilt að
áætla fjölda farþega fyrir viðkomandi tímabil eða leggja á 25% álag ef skil á farþegatölum dragast
umfram 20 daga.

Vatns- og rafmagnssala
14. gr.
Vatnsgjöld:
Vatn afgreitt frá bryggju – samkvæmt rennslismæli Faxaflóahafna sf.:
Kalt vatn kr./m3 383.
Heitt vatn kr./m3 910.
Lágmarksgjald miðast við 20 tonn.

Rafmagnssala:
Rafmagnsnotkun kr./kWst. 18,97.
Lágmarksgjald við tengingu og aðgang að rafmagni miðast við 400 kWst. á mánuði. Sama á við
um hvern frystigám, sem tengdur er rafmagni.

Úrgangs- og förgunargjald
15. gr.
Skipstjóri eða eigandi skips sem óskar eftir að láta á land sorp, farmleifar, olíuleifar eða mengandi
efni skal óska eftir aðstoð viðurkennds þjónustuaðila, sem höfnin hefur samþykkt að annist móttöku
og förgun á ofangreindum úrgangi frá skipum á hafnarsvæði hafnarinnar.
Skipstjóri, eigandi skips eða þjónustuaðili skal undantekningalaust skila útfylltu eyðublaði til
hafnarinnar um magn og tegund þess úrgangs sem skilað er á land.
Skip sem falla utan gr. 11 c. í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33 frá 2004 skulu
greiða þjónustuaðila kostnað vegna móttöku og förgun á úrgangi. Annist höfn móttöku og förgun á
almennum úrgangi skal gjald greitt fyrir þjónustuna samkvæmt grein þessari fyrir hvern rúmmetra
úrgangs. Annist höfnin móttöku á spilliefnum eða sérstökum úrgangi sem hefur í för með sér
kostnaðar umfram förgun á almennu sorpi greiðir viðkomandi aðili þann kostnað sem til fellur.

Vegna skipa sem falla undir grein 11 c. í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda nr. 33 frá
2004 skulu skip greiða eftirfarandi:
a. Úrgangsgjald: Við komu skips til hafna skal skip greiða 0,44 kr. á brt. Gjald þetta er til
þess að standa undir eftirliti og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi. Lágmarksgjald
samkvæmt þessum lið er kr. 6.156 og hámarksgjald kr. 33.817.
b. Úrgangsgjald: Gjald skv. staflið a. má lækka ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og
starfræksla skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur
verði til um borð. Fast gjald verður þá 0,22 kr. á brt. Lágmarksgjald samkvæmt þessum
lið er kr. 6.156 og hámarksgjald kr. 33.817.
c. Úrgangsgjald: Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á
almanaksárinu greiða samkvæmt b. lið fyrir fimmtu komu og komur eftir það.
d. Úrgangsgjald: Skip og bátar sem eru undir 60 metra að lengd, eru ekki hafnsöguskyld
og hafa varanlega viðveru í höfnum Faxaflóahafna sf. skulu greiða fast mánaðargjald
vegna eftirlits og umsýslu hafnar vegna móttöku á sorpi. Mánaðargjaldið skal vera kr.
6.156 á mánuði.
e. Förgunargjald: Við komu til hafnar skulu öll skip sem falla undir 11. grein laga nr. 33
frá 2004 greiða förgunargjald óháð því hvort þau skila úrgangi í land. Förgunargjaldið
skal standa á undir förgun á úrgangi sem skilað er á land:
Skip yfir 60 metrar á lengd skulu greiða 1,61 kr. á brt. Gjaldið miðast við eftirfarandi
sorpmagn:
Skip undir 30.000 brt: 5 m3
Skip frá 30.000 brt. til 100.000 brt: 10 m3
Skip yfir 100.000 brt: 15 m3
Greiða skal samkvæmt h-lið fyrir sorp sem fer umfram ofangreinda viðmiðun.
Skip og bátar sem eru undir 60 metrar á lengd og hafa varanlega viðveru í höfnum
Faxaflóahafna sf. skulu háðir sérstöku samkomulagi sem m.a. taki á lögum og reglum
um skil á sorpi.
Lágmarksgjald samkvæmt þessum lið er kr. 27.552.
f. Förgunargjald: Leiti skip til viðurkennds aðila um móttöku á úrgangi getur það fengið
álagt förgunargjald skv. e-lið endurgreitt enda skili það áður kvittun móttökuaðilans
ásamt réttum upplýsingum um losað magn. Skilyrði endurgreiðslu kostnaðar er að
kvittun móttökuaðila hafi borist Faxaflóahöfnum sf. innan tveggja sólarhringa frá
brottför skips.
g. Samkvæmt 11. grein laga nr. 1200 frá 2014 getur Umhverfisstofnun veitt skipum í
áætlunarsiglingum, sem hafa reglulega viðkomu í höfnum og sýna fram á trygga
afhendingu úrgangs og greiðslu gjalda í hverri höfn á siglingaleiðinni undanþágu frá
afhendingu úrgangs.
Skipstjóri eða eigandi skips sem fengið hefur undanþágu frá Umhverfisstofnun um
afhendingu úrgangs eða skilum á tilkynningum, skal framvísa gildri staðfestingu þess
efnis.
h. Skip sem undanþegin eru gjaldskyldu skv. 1. tl. 2. mgr. 17. gr. og 11. grein c-lið laga
nr. 33 frá 2004 hafnalaga skulu greiða fyrir móttöku hafnar og förgun á almennu
sorpi. Lágmarksgjald hafnar fyrir móttöku á úrgangi er kr. 12.357 á hvern rúmmetra
og lágmarksgjald einn rúmmetra. Annist höfnin móttöku á spilliefnum eða sérstökum
úrgangi sem hefur í för með sér kostnaðar umfram förgun á almennu sorpi greiðir
viðkomandi aðili þann kostnað sem til fellur.

Vigtargjald
16. gr.
Almenn vigtun kr. 285 á tonn.
Lægsta gjald fyrir einstaka vigtun/löndun kr. 1.770.
Skráningargjald á afla sem sjálfstæðir aðilar vigta kr. 3.150 á hverja löndun.
Þegar unnið er við vigtun um helgar og á milli kl. 20:00 og 07:00 virka daga, skulu skip yfir 100
BT greiða að auki kr. 8.256 fyrir hverja byrjaða klukkustund en bátar undir 100 BT greiða fast
gjald kr. 6.192 fyrir hverja löndun.

Lóðagjöld og lóðaleiga
17. gr.
Almenn regla:
Lóðagjöld eru ákveðin af hafnarstjórn.
Lóðaleiga skal vera hlutfall af lóðarmati hverrar lóðar, sem hafnarstjórn ákveður.
a) Lóðaleiga af lóðum í Reykjavík skal vera 2,15% af lóðarmati
b) Lóðaleiga af lóðum á Grundartanga skal vera 2,35% af lóðarmati
c) Lóðaleiga af farmstöðvum 5 hektara og stærri skal vera 2,00% af lóðarmati.

Geymslusvæði: 142 kr./m² á mánuði
Skammtímaleigusvæði með bundnu slitlagi: 66 – kr/m² á mánuði
Skammtímaleigusvæði án bundins slitlags: 34 – kr/m² á mánuði

Lágmarksgjald fyrir geymslusvæði og skammtímaleigu skal vera kr. 15.975 á mánuði.

Fyrir geymslu báta og vagna á upptökusvæði skal greiða sama gjald og fyrir báta undir 100 brt.
samkvæmt 4. grein.

Siglingavernd
18. gr.
Skipum, sem falla undir ákvæði laga um siglingavernd nr. 50/2004, ber að greiða eftirtalin gjöld
til Faxaflóahafna sf.:

Farmskip:
Skipavernd kr. 52.416 hverja komu.
Farmvernd 20,0% álag á vörugjöld.

Farþegaskip:
Farþegavernd 255 kr. – pr. farþega.
Skipavernd 52.416 kr. á hverja komu.
Gjaldið miðast við einn öryggisvörð.
ISPS skimunargjald 2.250 kr. – pr. farþega. Gjald þetta felur í sér skimun á farþegum og eða
farangri.
Samkvæmt ISPS reglum er krafa um tvo öryggisverði við farþegaskip og við farþegaskipti eru
þarfir um auka öryggisverði, umfram tvo, metnar hverju sinni í samráði við umboðsmann skips.
Gjald fyrir öryggisvörð, umfram einn, er innheimt pr. klst., kr. 6.716

Fyrir vaktþjónustu við öll skip skal greiða kr. 6.716, á klst

Önnur þjónusta
19. gr.
Leiga á landgöngum yfir 10 – 14 metrar: kr. 73.974 fyrir hverja byrjaða 24 tíma.
Leiga á landgöngum yfir 14 metrar: kr. 102.506 fyrir hverja byrjaða 24 tíma.
Leiga á landgangspalli: kr. 102.506 fyrir hverja byrjaða 24 tíma.
Leigutaki greiðir kostnað við uppsetningu, niðurtöku og flutning á landgöngum.
Leiga á sérstökum fríholtum til skipa: kr. 47.555 fyrir hverja byrjaða 24 tíma.

20. gr.
Mengunarvaldur skal greiða allan kostnað við hreinsun vegna mengunaróhappa samkvæmt
lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. M.a. getur þar verið um að ræða kostnað vegna
vinnu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, vinnu starfsmanna Faxaflóahafna sf., kostnaður vegna
notkunar á búnaði og nauðsynlegum efnum til hreinsunar.

Um innheimtu og greiðslu gjalda
21. gr.
Séu gjöldin ekki greidd á réttum gjalddögum er áskilið að reikna dráttarvexti af gjaldfallinni
fjárhæð skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

22. gr.
Skipstjóri, eigandi, umboðsmaður og umráðamaður skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra
sem greiða ber til Faxaflóahafna sf. vegna skipsins. Er skipstjóra skylt við komu til hafnar að gefa
hafnarstjóra upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr.326/2004
um hafnamál og afhenda hafnarstjóra þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef
hafnarstjóri krefst þess, vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra og hefur hafnarsjóður
haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á
ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.
Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfn og enginn skipstjóri getur vænst þess að fá
afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema að hann sanni með vottorði frá
hafnarstjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

23. gr.
Vörugjald reiknast skipi til skuldar áður en skip hefur siglingu, nema annað sé sérstaklega um
samið. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans
ábyrgð.
Skipstjóra, útgerðarmanni og eiganda skips ber að greiða til hafnar gjöld samkv. 17. gr. hafnalaga
61/2003.
Móttakandi vöru sem kemur til hafnar og sendandi vöru sem flutt er úr höfn greiða gjöld samkv.
9. gr. gjaldskrá þessari.
Ef margir eiga vörur sem fluttar eru með sama skipi skal farmflytjandi sjá um innheimtu á
gjöldum hjá sendanda og móttakanda, eftir því sem við á, og standa höfn skil á þeim
Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.
Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur
er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar
vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar
fyrr en gjaldið er greitt.

24. gr.
Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.
Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö
ár fyrir samningsveðkröfum sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Faxaflóahöfnum
sf. er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.
Lóðarleiga á hafnarsvæðum er tryggð með lögveði í viðkomandi lóð.

25. gr.
Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Faxaflóahöfnum sf. er skylt að innheimta
virðisaukaskatt af öllum gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um
virðisaukaskatt.
Gildistaka.

26. gr.
Gjaldskrá þessi fyrir Faxaflóahafnir sf. er samþykkt af hafnarstjórn þann 19. nóvember 2021 og,
skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004.
Gjaldskráin öðlast gildi þann 1. janúar 2022 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga
að máli.

Ákvæði til bráðabirgða:
Bátar sem alfarið eru knúnir rafmagni og notaðir til skipulagðra siglinga með farþega eru
undanþegnir bryggju- og lestargjaldi samkvæmt 4. grein til ársloka 2025.
Skip sem knúin eru fljótandi gasi (LNG) á hafnarsvæði skulu til ársloka 2025 fá 15% afslátt af
bryggju- og lestargjaldi.

Reykjavík, 19. nóvember 2021.
Magnús Þór Ásmundsson, hafnarstjóri

FaxaportsFaxaports linkedin