Menningarnótt verður haldin 24. ágúst n.k. Vegna fjölda áskorana og áhuga sem Reykjavik Street Food hefur verið sýnt eftir Götubithátíðina á Miðbakkanum í júlí, þá verður leikurinn endurtekinn á Menningarnótt á Miðbakkanum.

Á Götubitanum á Menningarnótt koma saman í kringum 25 mismunandi matarsöluaðilar í vögnum og gámum ásamt tveim börum.   Á svæðinu verða nýjir aðilar sem ekki hafa verið með áður og því verður nóg um að vera fyrir alla fjölskylduna.  

Götubitinn á Menningarnótt, 24 ágúst, verður opin frá klukkan 11.30-23.30, þó munu einhverjir matarvagnar hafa opið til klukkan 04.30 um nóttina (mismunandi eftir vögnum). 

Þeir aðilar sem hafa staðfest þáttöku eru (birt með fyrirvara um breytingar):

Tacoson, Bitabíllinn, Fish & Chips Wagon, Vöffluvagninn, Icelandic Treasure,Lobster Hut, Volcano Crepes, Prikið, Fish And Chips Vagninn, Reykjavik Chips, Gastro Truck, Tacovagninn, Flatbakan, Tasty, Senis´s, Urban Street Food, JÖMM, Magellan Filipino, Lamb Street Food, Ramen Momo, Bombay Bazar, Brass Street Food, KORE, Kjötlandsliðið, Gull Vagninn, Viking Brugghús.

Öll ábyrgð vegna þessa viðburðar á Miðbakkanum er í höndum Reykjavíkurborgar og Reykjavík Street Food. Faxaflóahafnir leggja einungis til svæðið til notkunar. Frekari upplýsingar um Menningarnótt má finna hér.

Allir velkomnir!

FaxaportsFaxaports linkedin