Faxaflóahafnir, Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn ásamt Special Tours standa að hinu árlega samstarfsverkefni „Sjóferð um sundin“. Þar sem grunnskólabörn sveitarfélaga Faxaflóahafna er boðið í siglingu og fræðslu um lífríki hafsins á Faxaflóa undir leiðsögn starfsmanna Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Samstarfsverkefnið er hluti af náttúrufræðikennslu 6. bekkjar grunnskólabarna í Reykjavík, Akranesi, Hvalfjarðasveit og Borgarbyggð.

 

Tugþúsundir barna hafa tekið þátt í „Sjóferð um sundin“ síðan 1996

 

Í þá hartnær þrjá áratugi sem verkefnið hefur staðið yfir hafa þúsundir barna fengið að fræðast um lífríki við Faxaflóa og hafnarstarfsemi Faxaflóahafna. „Við hjá Faxaflóahöfnum erum ákaflega stolt af að vera aðalkostunaraðili þessa glæsilega samstarfsverkefnis, þar sem komandi kynslóðum við Faxaflóa gefst tækifæri að fræðast um hafið sem umlykur okkur, færir okkur sjávarfang og ekki síður tengir okkur við umheiminn“, segir Sigurður Jökull Ólafsson markaðstjóri Faxaflóahafna. Ferðaþjónustufyrirtækið Special Tours hefur verið samstarfsaðili Faxaflóahafna og Fjölskyldu – og húsdýragarðsins alveg frá fyrstu siglingu sem var árið 1996. „Við hjá Special Tours erum stolt af því að hafa tekið þátt í þessu verkefni allt frá upphafi. Fyrstu fræðsluferðirnar með grunnskólabörnum urðu í raun grunnurinn að stofnun Sérferða, í dag Special Tours. Það er okkur hjartans mál að börn fái að upplifa og fræðast um hafið á lifandi hátt – enda er Faxaflói ekki bara hluti af náttúruumhverfi okkar, heldur líka mikilvæg tenging við samfélagið og framtíðina,“ segir Ásta María Marinósdóttir, framkvæmdastjóri Special Tours.

 

FaxaportsFaxaports linkedin