Ný, fjölnota farþegamiðstöð rís nú við Viðeyjarsund í Reykjavík og tekur á móti fyrstu farþegum skemmtiferðaskipa í vor. Utan annatíma skemmtiferðaskipa, frá október og út mars ár hvert, fær farþegamiðstöðin annað hlutverk sem vettvangur fyrir fjölbreytta viðburði og samkomur.

Faxaflóhafnir leita til almennings um nafn á húsið og hægt er að skila inn tillögum í gegnum vefsíðuna nafnasamkeppni.is fram til 1. febrúar. Við viljum að nafnið sé þjált, falli vel að íslenskri málhefð og sé ekki tungubrjótur fyrir þau sem tala önnur mál.

Opnun farþegamiðstöðvarinnar markar tímamót í móttöku skemmtiferðaskipa á Íslandi og leysir af hólmi þá tímabundu og takmörkuðu aðstöðu sem fyrir er á hafnarsvæðum Faxaflóahafna. Hér er á ferð fyrsta farþegamiðstöðin hérlendis sem sérhæfir sig í þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa og jafnframt fyrsta farþegamiðstöðin sem rís í Reykjavík í 60 ár eða frá opnun Bifreiðastöðvar Íslands – BSÍ, árið1965.

Ný fjölnota farþegamiðstöð við Viðeyjarsund

Vorið 2026 taka Faxaflóahafnir í notkun nýja, fjölnota farþegamiðstöð sem þjónusta mun þann mikla fjölda farþega skemmtiferðaskipa sem hingað kemur ár hvert. Farþegamiðstöðin tryggir betri þjónustu við ferðamenn og styður markmið Faxaflóahafna um fjölgun skiptifarþega; þeirra sem hefja eða ljúka skemmtisiglingu sinni hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa aukin verðmæti fyrir íslenskt efnahagslíf.

Veisluríkur vetur við Viðeyjarsund

Utan annatíma skemmtiferðaskipa, frá október og út mars ár hvert, verður farþegamiðstöðin vettvangur fjölbreyttra viðburða og samkoma. Faxaflóhafnir tilkynntu í fyrra um samstarf við Múlakaffi um nýtingu hússins yfir vetramánuðina og hafa bókanir gengið vonum framar. Húsið rúmar allt að 2.000 veislugesti sem njóta stórbrotins útsýnis yfir Viðeyjarsund.

Verðlaun: Sigling fyrir tvo með skemmtiferðaskipi  🏆 🛳️

Vinningshafi nafnasamkeppninnar hlýtur að launum siglingu fyrir tvo í skemmtiferðaskipti frá nýju farþegamiðstöðinni við Viðeyjarsund til Bretlands, dagana 2.-12. Júlí 2026, og flug til Íslands eftir siglinguna. Ferðin inniheldur glæsilegt herbergi með svölum og margvísleg fríðindi. Lagt er af stað frá nýju farþegamiðstöðinni í Reykjavík og komið verður við á Ísafirði, Akureyri, Maloy í Noregi, Lerwich á Hjaltlandseyjum, Inverness og Edinborg í Skotlandi áður en lagst er að bryggju í Southampton.

Dómnefnd

Dómnefnd samkeppninnar skipa Gunnar Tryggvason hafnarstjóri, Líf Magneudóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna og Vigdís Hafliðadóttir, listamaður, heimspekingur, sjónvarpskona og textahöfundur, sem jafnframt er formaður dómnefndar.

Faxaflóahafnir – tenging Íslands við umheiminn

Faxaflóahafnir reka umfangsmestu hafnir landsins á starfssvæðum sínum í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi. Fyrirtækið tengir stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin, með öruggum, grænum og skilvirkum höfnum. Um 80 manns starfa hjá Faxaflóahöfnum, sem leggja áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum og þróun snjallra og sjálfbærra hafna til framtíðar.

Sendu inn þína tillögu á nafnasamkeppni.is

 

FaxaportsFaxaports linkedin