
Aurora fiskeldi sem fyrirhugar byggingu 28.000 tonna laxeldisstöðvar á Grundartanga hélt opin kynningarfund á Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit í gær, 17 desember. Þar kynntu forsvarsmenn Aurora verkefni fyrir fundarmönnum og fulltrúi Eflu verkfræðistofa kynnti niðurstöður mats á umhverfisáhrifum.
Góð mæting var á fundinn og ljóst á umræðum að áhugi fyrir verkefninu er mikill.
Faxaflóahafnir eru stofnaðili að Þróunarfélagi Grundartanga sem vinnur að þróun græns iðngarðs á svæðinu með bættri fjölnýtingu auðlinda og innviða. Uppbygging garðsins er í samræmi við viðmið Alþjóðabankans og Sameinuðu þjóðanna um græna iðngarða og er garðurinn sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi.
Matsskýrsluna má finna á vef Skipulagsstofnunar, hér
