Ljósin á Hamborgartrénu voru tendruð kl. 17:00 laugardaginn 30. nóvember. Tréð er staðsett á Miðbakka Reykjavíkurhafnar. Það eru góðir vinir frá Hamborg sem senda jólatréð til Reykjavíkurhafnar. Þessi hefð hefur verið milli aðila allt frá árinu 1965.

Þessi fallegi siður, að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar, er tileinkaður íslenskum togarasjómönnum sem sigldu á Hamborg með fisk strax eftir seinni heimstyrjöldina. Þess er sérstaklega minnst að sjómennirnir gáfu svöngu og ráðlausu fólki á hafnarsvæðinu fiskisúpu á meðan verið var að landa úr togaranum.

Á hverju ári síðan árið 1965 hefur Eimskipafélag Íslands flutt tréð endurgjaldslaust til Reykjavikur og í ár eru það Íslandsvinafélögin í Hamborg og Köln sem styrkja þetta framtak.

Allar myndir sem teknar eru af viðburð eru settar inn á heimasíðu og Facebook síðu fyrirtækisins. Myndbandið má sjá hér.

Ljósmyndari: Gunnlaugur Rögnvaldsson

FaxaportsFaxaports linkedin