
Metár í fjölda farþega
Metfjöldi farþega, rúmlega 330.000, heimsótti Reykjavík yfir vertíð skemmtiferðaskipa 2025 sem nú er lokið. Skiptifarþegar voru fleiri en nokkru sinni fyrr og fjölgaði þeim um 15% milli ára. Faxaflóahafnir hafa unnið markvisst að því að fjölga þessum hópi farþega, sem dvelur lengur á landinu og skapar aukin verðmæti fyrir íslenskt efnhagslíf.
Frá komu fyrsta skipsins, Le Commandant Charcot frá Ponant þann 20. mars, og þar til Vasco da Gama frá Nicko Cruises sigldi í höfn 28. október, fóru alls 330.474 farþegar um hafnir Faxaflóahafna með skemmtiferðaskipum.
Til samanburðar komu 321.966 farþegar árið 2024, sem samsvarar 2,7% heildaraukningu á milli ára.
Aukning skiptifarþega skapar aukin verðmæti
Faxaflóahafnir hafa á undanförnum árum lagt sérstaka áherslu á að fjölga skiptifarþegum sem nýta Keflavíkurflugvöll í upphafi eða lok ferða með skemmtiferðaskipum. Skiptifarþegar dvelja að jafnaði lengur í landinu og skapa því meiri tekjur fyrir íslenskt efnahagslíf.
Samkvæmt könnun Rannsóknarmiðstöð ferðamála eru útgjöld skiptifarþega hérlendis að jafnaði 2,8 sinnum hærri en útgjöld annarra farþega skemmtiferðaskipa.
Árið 2025 ferðuðust 180.299 skiptifarþegar um hafnir Faxaflóahafna, 23.845 fleiri en árið áður, sem er 15,2% aukning. Þetta er mesti fjöldi skiptifarþega frá upphafi.
Óvissa framundan og samdráttur í bókunum 2026 og 2027
Boðaðar breytingar á skattaumhverfi skemmtiferðaskipa hafa skapað óvissu í greininni. Staða bókana fyrir árin 2026 og 2027 sýnir samdrátt í bæði skipakomum og farþegafjölda. Þróunin bendir til þess að áhrifin gætu orðið meiri og alvarlegri til lengri tíma litið.


Þáttaskil með nýrri farþegamiðstöð við Viðeyjarsund
Vorið 2026 munu Faxaflóahafnir taka í notkun nýja fjölnota farþegamiðstöð á Skarfabakka við Viðeyjarsund.
Nýja farþegamiðstöðin mun:
Stórbæta aðstöðu og þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa sem koma til Reykjavíkur
Leysa af hólmi tímabundna og takmarkaða aðstöðu sem nú er til staðar.
- Styðja markmið Faxaflóhafna um áframhaldandi fjölgun skiptifarþega, sem hefja eða ljúka ferðalagi sínu með skemmtiferðaskipum á Íslandi.
Utan annatíma skemmtiferðaskipa, frá október og út mars ár hvert, mun farþegamiðstöð Faxaflóahafna fá annað hlutverk sem vettvangur fyrir fjölbreytta viðburði, samkomur og veislur með einstöku útsýni yfir Viðeyjarsund.
Sjálfbærni í fyrirrúmi – jákvæð samfélagsleg og efnahagsleg áhrif
Faxaflóahafnir leggja áherslu á sjálfbærni í allri starfsemi sinni. Í móttöku skemmtiferðaskipa vill fyrirtækið stuðla að jákvæðum samfélagslegum og efnahagslegum áhrifum og tryggja að ávinningurinn nýtist bæði íbúum og gestum
Í skýrslu Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins um skemmtiferðaskip (2024) kemur fram að fjárhagslegur ávinningur íslenska hagkerfisins af komum skemmtiferðaskipa er umtalsverður. Með sjálfbærni að leiðarljósi er horft til þess að stuðla að jákvæðum áhrifum skemmtiferðaskipa og byggir stefnan á fjórum sjálfbærnivíddum: efnahag, samfélagi, gestum og umhverfi. Meðal annars var horft til Græna plans Reykjavíkurborgar, auk þess sem stefnan hefur beina vísun í aðgerð C.7 í ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda.
Framtíðarsýnin er að Reykjavík verði leiðandi á norðurslóðum í sjálfbærri þróun, framúrskarandi þjónustu og einstakri náttúru- og menningarupplifun þegar kemur að móttöku skemmtiferðaskipa. Með áherslu á sjálfbæra þróun er stefnt að því að skapa jafnvægi milli efnahagslegs ávinnings og umhverfisverndar, þar sem hagsmunir íbúa, gesta og fyrirtækja eru hafðir að leiðarljósi.
Faxaflóahafnir – Tenging Íslands við umheiminn
Faxaflóahafnir reka umfangsmestu hafnir landsins á starfssvæðum sínum í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi. Fyrirtækið tengir stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin með öruggum, grænum og skilvirkum höfnum.
Um 80 manns starfa hjá Faxaflóahöfnum sem leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum og er í vegferð að þróa snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar.

Norwegian Star, síðasta stóra skemmtiferðaskipið sem heimsótti Reykjavík í ár, siglir inn Viðeyjarsund.

Norwegian Star og Magni dráttarbátur Faxaflóahafna.

Norwegian Star við Skarfabakka. Til vinstri á myndinni má sjá nýja fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóhafna rísa. Miðstöðin mun tryggja betri þjónustu við ferðamenn og styður við markmið Faxaflóahafna um fjölgun skiptifarþega sem dvelja lengur á landinu.
