Þann 31. mars sl., birtist grein í Viðskiptablaðinu sem tilgreindi hvaða níu teymi taka þátt í nýsköpunarhraðlinum Hringiðju og eru þau tilgreind hér fyrir neðan. Teymunum er ætlað að efla og styðja við nýja tækni, ásamt því að finna aðferðir til að leysa aðsteðjandi úrlausnarefni í umhverfismálum.

Viðskiptahraðallinn, Hringiðja, byggir á alþjóðlegri fyrirmynd og býður upp á metnaðarfullan vettvang til vöruþróunar.  Bakhjarlar að verkefninu eru: Reykjavíkurborg, Atvinnuvegaráðuneytið, Orkuveita Reykjavíkur, Hvalfjarðarsveit, Faxaflóahafnir, Sorpa og Terra auk Þróunarfélags Grundartanga og Breið Þróunarfélags. Umsjón með hraðlinum er í höndum Icelandic Startups sem hefur til fjölda ára veitt aðstoð við þróun viðskiptahugmynda og leitt saman hóp hagaðila með verðmætasköpun að leiðarljósi.

Teymin sem taka þátt árið 2021 eru: 

  • Ánaburður
    Framleiðsla á hágæða lífrænt vottuðum áburði úr lífrænum úrgangi. Fyrirtækið mun nýta svokallaða vermicompostin aðferð við framleiðsluna en hún felst í því að ánamaðkar eru fóðraðir á lífrænum úrgangi sem þeir svo skila frá sér sem áburði.
  • Hemp Pack
    Hemp Pack er ungt líftækni fyrirtæki í þróun á lífplasti úr lífmassa og kaldræktuðum örverum. Fyrirtækið nýtir afföll matvælaiðnaðar og landbúnaðarframleiðslu ásamt endurnýjanlegri orku til þess að framleiða sannarlega sjálfbæran staðgengil plasts fyrir alþjóðlegan markað.
  • Icewind
    IceWind hannar og smíðar litlar lóðréttsás vindtúrbínur ætlaðar fyrir öfgafullt veðurfar á norðurslóðum. Rekstraraðilar lítilla orkukerfa úr alfaraleið hafa oftar en ekki engan aðgang að rafmagni og þurfa því að framleiða sína eigin orku. Sólarorka er mjög takmörkuð á norðurslóðum og því þarf að notast við aðrar aðferðir við orkuöflun svo sem vindorku.
  • Íslenska glerið
    Endurvinnsla á steinull í nýtt hráefni. Íslenska glerið er samstarfsverkefni Fléttu, hönnunarstofu og Kristínar Sigurðardóttur vöruhönnuðar þar sem steinull er endurnýtt í nýtt glerjað efni fyrir bygginariðnað.
  • M Bío Box
    Þróa íslenska útfærslu af náttúrulega niðurbrjótanlegum umbúðum til að leysa af hólmi óvistvænar umbúðir nýttar fyrir fiskútflutning í dag.
  • On to something
    Vettvangur sem tengir saman ólíka aðila og mótar skapandi farvegi fyrir hreina strauma fráfallsefna með verðmætasköpun og sjálfbærni að leiðarljósi.
  • Surova
    Sjálfvirk grænmetisræktun inni í stöðluðum gámaeiningum staðsettum í nánd við verslanir. Surova vinnur að lágmörkun auðlinda við framleiðslu grænmetis með þróun sjálfvirkra lausna til að hámarka afköst og hagkvæmni hverrar uppskeru.
  • Vestro
    Vestro þróar nýjar vörur úr 100% endurunnu plasti og skapa í leiðinni hringrás.  Markmiðið er að skipta út hefðbundnu plasti fyrir 100% endurunnið plast í framleiðslufyrirtækjum, öllum iðnaði, flutningafyrirtækjum, heimilum, sjávarútvegi og landbúnaði.
  • XYZ Prent
    Fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðsluferlum sem byggist á stórum þrívíddarprentunum með endurunnum Íslenskum plastúrgangi. Með að bjóða upp á þrívíddarprentun í stórum stærðum þá styðjum við sjálfbæra framleiðslu og þróunarvinnu í íslenskri hönnun og iðnaði, jafnframt, með notkun á plastúrgangi, sem annars yrði sendur úr landi, þá höldum við tækifærisskapandi afurðum innanlands.

FaxaportsFaxaports linkedin