Faxaflóahafnir hafa gengið til samninga við Múlakaffi um nýtingu samkomu- og veislusala í nýrri og glæsilegri farþegamiðstöð á Skarfabakka við Viðeyjarsund, utan háannatíma skemmtiferðaskipa yfir vetrarmánuðina. Um er að ræða 5.500 fm. byggingu á tveimur hæðum, með stórbrotnu útsýni yfir sundið.
Vorið 2026 munu Faxaflóahafnir taka í notkun nýja og glæsilega fjölnota farþegamiðstöð sem þjónusta mun þann mikla fjölda farþega skemmtiferðaskipa sem hingað koma ár hvert. Farþegamiðstöðin leysir af hólmi tímabundna og takmarkaða aðstöðu sem fyrir er, tryggir betri þjónustu við ferðamenn og styður við það markmið Faxaflóahafna að fjölga skiptifarþegum skemmtiferðaskipa; ferðamönnum sem hefja eða ljúka ferðalagi sínu með skemmtiferðaskipum hérlendis, dvelja lengur á landinu og skapa þar með aukin verðmæti í samfélaginu.

Undirritun samnings. Frá hægri; Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs Faxaflóhafna, Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, Jóhannes Stefánsson, eigandi Múlakaffis, Guðríður María Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Múlakaffis.
Fjölnota farþegamiðstöð
Frá október og út mars ár hvert, eða utan hefðbundins annatíma í komu skemmtiferðaskipa, mun þessi fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna fá annað hlutverk sem glæsilegur vettvangur fyrir fjölbreytta viðburði, samkomur og veislur í Reykjavík. Eftir formlegt útboðsferli var það niðurstaða Faxaflóahafna að ganga til samstarfs við Múlakaffi og var samstarfssamningur til fimm ára undirritaður í dag, 1. október.
“Við sjáum gríðarleg tækifæri í nýrri farþegamiðstöð í Sundahöfn. Veisluþjónusta í sinni breiðustu mynd er kjarnastarfsemi okkar í Múlakaffi og á þeim markaði er mikil umfram eftirspurn eftir aðstöðu, sem ný farþegamiðstöð mun mæta. Um er að ræða stórglæsilega veislusali með óviðjafnanlegu útsýni á magnaðri staðsetningu við sjávarsíðuna og hlökkum við til þess að bjóða okkar stóra hópi viðskiptavina upp á nýjan áfangastað fyrir veislur og viðburði af öllum stærðum og gerðum”, segir Guðríður María Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Múlakaffis.

Frá október og út mars ár hvert, utan hefðbundins annatíma í komu skemmtiferðaskipa, mun þessi fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna fá annað hlutverk sem vettvangur fyrir fjölbreytta viðburði, samkomur og veislur í Reykjavík.
Faxaflóahafnir – skiptistöð skipafarþega í Norður-Atlantshafi
Síðastliðin tvö ár hafa um 300 þúsund ferðamenn farið um Faxaflóahafnir á ári, með 260 skipum. Faxaflóahafnir hafa lagt sérstaka áherslu á að fjölga skiptifarþegum sem ferðast um Keflavíkurflugvöll á leið sinni í ferðalög með skemmtiferðaskipum, en þeir dvelja lengur á landinu og skapa þar með aukin verðmæti fyrir samfélagið. Hlutfall skiptifarþega af heildarfjölda gesta í ár er áætlað 52,4% og hefur aldrei verið hærra.
“Ný farþegamiðstöð mun gerbylta allri aðstöðu og þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa sem koma til Reykjavíkur. Miðstöðin mun styrkja starfsemi okkar sem leiðandi höfn í Norður-Atlantshafi og er liður í áframhaldandi sókn okkar við að auka hlut skiptifarþega skemmtiferðaskipa sem hefja eða ljúka ferð sinni á Íslandi. Við hönnun hússins höfum við gert ráð fyrir að það nýtist allan ársins hring, líka á þeim tímum þegar skemmtiferðaskip eru ekki á ferðinni við Ísland. Við viljum halda líflegri starfsemi í húsinu yfir vetrarmánuðina og þar kemur Múlakaffi til sögunnar með sína sérþekkingu og áratuga reynslu. Framkvæmdum við húsið miðar vel og við hlökkum til að bjóða fyrstu farþegana velkomna þar næsta vor,” segir Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri framkvæmdasviðs hjá Faxaflóahöfnum.
“Við erum nú þegar farin að taka við fyrirspurnum fyrir haustið 2026 og höfum bókað nokkrar stórar árshátíðir hjá íslenskum fyrirtækjum auk stærri og minni ráðstefna. Áhugasamir geta sent okkur fyrirspurn á mulakaffi@mulakaffi.is”, bætir Guðríður við að lokum.

Fulltrúar Faxaflóahafna og Múlakaffis á efri hæð hússins sem brátt mun hýsa bæði öryggisleit og brottfarasal fyrir farþega skemmtiferðaskipa, ásamt veislum og viðburðum yfir vetrarmánuðina.
