Faxaflóahafnir hafa gengið í Festu – miðstöð um sjálfbærni og við stolt af að vera hluti af hópi fyrirtækja sem leggja áherslu á sjálfbærni í sínum rekstri.

„Við sjáum Festu sem spennandi vettvang til að læra af framsæknum fyrirtækjum og deila okkar eigin reynslu“ segir Gyða Mjöll Ingólfsdóttir, gæða og umhverfisstjóri Faxafláhafna. „Með þátttöku viljum við leggja okkar af mörkum til að auka vitund og skilning á mikilvægi sjálfbærni í samfélaginu – og um leið syrkja okkar eigin aðgerðir og stefnumótun í umhverfis- og sjálfbærnimálum.“

Tæplega 200 fyrirtæki, sveitafélög og stofnanir mynda í dag samfélag Festu sem hefur það að markmiði að hafa auðgandi áhrif á umhverfi okkar og samfélag. Stefnu og framtíðarsýn miðstöðvarinnar, ásamt yfirlit yfir öll aðildarfélög miðstöðvarinnar, má finna hér.

Sýn Faxaflóahafna er að auka lífsgæði á Íslandi með því að reka öruggar, grænar og skilvirkar hafnir. Við tengjum stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin og erum í vegferð að þróa snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar. Við erum stolt af aðild okkar að Festu og störfum saman að markmiðum miðstöðvarinnar að hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag.

FaxaportsFaxaports linkedin