Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Reykjavík sunnudaginn 12. júní á þessu ári. Það eru Faxaflóahafnir, Sjómannadagsráð og Brim sem eru bakhjarlar hátíðarinnar og standa að hátíðarhöldunum úti á Granda. Á dögunum undirrituðu þessir aðilar samstarfssamning sín á milli með það að markmiði að auka hróður dagsins.

“Sjómannadagurinn er alla jafna haldinn fyrstu helgina í júní en þar sem Hvítasunnuna ber upp þá í ár, verður hann aðra helgina, þ.e. 12. júní. Við ætlum að gera daginn eftirminnilegan fyrir gesti og gangandi, enda hefur hátíðin fest sig í sessi og verður æ fjölmennari ár frá ári. Það sem vakir ekki síður fyrir okkur er að kynna þessa mikilvægustu atvinnugrein okkar Íslendinga og gefa fólki innsýn í starfsemina”, segir Aríel Pétursson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs.

Sjómannadagurinn hefur verið kynntur sem hluti af Hátíð hafsins undanfarin ár og hafa hátíðahöldin staðið yfir 2 daga. Í ár verður þó Sjómannadagurinn sjálfur látinn duga og öllu tjaldað til á sjálfan hátíðardaginn.

137 dagar til stefnu

Samstarfsaðilarnir hafa samið við Önnu Björk Árnadóttur, eiganda viðburðafyrirtækisins Eventum um að stýra hátíðinni auk þess sem þeir fengu Elísabetu Sveinsdóttur til að sjá um markaðs- og kynningarmálin. Undirbúningur af þeirra hálfu er hafinn, enda að mörgu að huga fyrir jafn viðamikla hátíð.

“Tenging okkar við sjóinn er mikilvægur þáttur í þjóðarsál okkar íslendinga. Markmið er að stuðla að enn frekari tengingu í gegnum leik, listir, fræðslu og skemmtun. Það er mitt persónulega markmið að dagurinn verði ógleymanlegur og er hópurinn allur á því að gera okkar besta til að svo verði”, segir Anna Björk.

Sjómannadagurinn er einn af stærri hátíðisdögum Reykjavíkurborgar, en rúmlega 40.000 manns lögðu leið sína að höfninni á Grandagarði síðast þegar dagurinn var haldinn hátíðlegur árið 2019.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Garðarsson, framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs s. 892-1771.

 

Ljósmynd talið frá vinstri: Torfi Þ. Þorsteinsson forstöðumaður samfélagstengsla hjá Brim, Sigurður Garðarsson framkvæmdarstjóri Sjómannadagsráðs, Erna Kristjánsdóttir markaðs- og gæðastjóri Faxaflóahafna, Anna Björk Árnadóttir eigandi viðburðarfyrirtækisins Eventum sem stýrir hátíðinni, Aríel Pétursson stjórnarformaður Sjómannadagsráðs og Elísabet Sveinsdóttir sem sér um markaðs- og kynningarmál hátíðarinnar.

FaxaportsFaxaports linkedin