Nú er árið 2021 gengið í garð og því gott að fara yfir liðið ár. Faxaflóahafnir sf. hafa gert það að vana sínum að halda utan um yfirlit um skipakomur, tegundir skipa og stærð þeirra. Á árinu 2020 voru samtals 1.106 skipakomur. Ef við berum tölur ársins 2020 saman við tölur 2019, þá var samdráttur um 272 skipakomur milli ára eða rúmlega 25%. Samdráttur í skipakomum varð á eftirfarandi tegundum skipa: Flutningaskip (13 %), fiskiskip (12%), farþegaskip (96%), rannsóknar- og varðskip (37%). Hins vegar var aukning á skipakomum annarra skipa (42%), sem og tankskipa (21%).

Ef við skoðum hins vegar nánar samtals brúttótonnatölu skipa sem koma til Faxaflóahafna, þá er sjáanlegur munur milli ára. Á árinu 2019 komu skip að stærð 13.592.129 brúttótonn til hafna Faxaflóahafna. Hins vegar varð samdráttur á árinu 2020, en þá var heildarstærðin komin niður í 6.887.184 brúttótonn.

Samdráttur á skipaumferð árið 2020 var að mestu leiti v/Covid-19.

Hér að neðan má sjá þróunina á skipakomum frá árinu 2010 til 2020

a) Fjöldi skipa

b) Samanlögð stærð

FaxaportsFaxaports linkedin