Viltu vera hluti af góðri liðsheild? Faxaflóahafnir leita að öflugu starfsfólki í hafnaröryggisgæslu í Reykjavík og hafnargæslu á Grundartanga fyrir sumarið 2026.
Starfsstöð hafnaröryggisgæslu er í Reykjavík og starfsstöð hafnargæslumanns er á Grundartanga. Við hvetjum hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk til að sækja um, óháð kyni.
Faxaflóahafnir hafa skýra jafnréttisstefnu og leggja áherslu á fjölbreytileika í starfsliði sínu.
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist tá netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar en sunnudaginn 15. febrúar 2026.
Hafnaröryggisgæsla í Reykjavík
Starfsfólk í hafnaröryggisgæslu í Reykjavík frá byrjun maí til loka september 2026.
Starfið felst í að veita faglega og áreiðanlega öryggisgæslu og þjónustu í höfnum Faxaflóahafna. Helstu verkefni eru öryggisgæsla við komur og brottfarir skemmtiferðaskipa, móttaka skipa, umhirða hafnarsvæða,ásamt
öðrum tilfallandi verkefnum tengdum þjónustu við viðskiptavini.
Hæfniskröfur
- Hæfni til að starfa í teymi
- Góð enskukunnátta í ræðu og riti (íslenskukunnátta er kostur)
- Grunnfærni í tölvunotkun
- Gott líkamlegt og andlegt ástand
- Umsækjandi skal leggja fram hreint sakavottorð með umsókn
Hafnargæsla á Gundartanga
Hafnargæslumaður á Grundartanga í afleysingar frá miðjum maí til loka ágúst 2026, með möguleika á áframhaldandi starfi.
Starfið felst í aðgangsstjórnun og öryggisgæslu á afgirtu hafnarsvæði, reglubundnu eftirliti með aðstoð myndavélaeftirlitskerfis, auk fjarvöktunar á öðrum hafnarsvæðum og eignum Faxaflóahafna.
Hæfniskröfur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
- Gott líkamlegt og andlegt ástand
- Umsækjandi skal leggja fram hreint sakavottorð með umsókn
Faxaflóhafnir – Við tengjum Ísland við umheiminn
Faxaflóahafnir reka umfangsmestu hafnir landsins á starfssvæðum sínum í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi. Fyrirtækið tengir stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin með öruggum, grænum og skilvirkum höfnum.
Um 80 manns starfa hjá Faxaflóahöfnum sem leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum og er í vegferð að þróa snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar.

