Fjörusteinninn umhverfisverðlaun Faxaflóahafna hafa verið veitt frá árinu 2007 og eru nú veitt í 15 skipti. Venjan hefur verið að veita verðlaunin fyrirtækjum sem starfa á hafnarsvæðunum og sýnt hafa fram á framsækni í umhverfismálum og verið til fyrirmyndar hvað varðar frágang á lóðum og snyrtilegt umhverfi.

Eftirfarandi aðilar hafa hlotið Fjörusteininn frá upphafi:

2007 Eimskipafélag Íslands
2008 Nathan og Olsen hf
2009 Egilsson ehf
2010 Jón Ásbjörnsson og Fiskkaup ehf
2011 Lýsi hf
2012 Samskip hf
2013 Elding – hvalaskoðun ehf
2014 HB Grandi hf
2015 Íslenski Sjávarklasinn ehf
2016 Special Tours
2017 Landhelgisgæsla Íslands
2018 Hafið öndvegissetur
2019 Hafrannsóknastofnun Íslands
2020 Harpa

Á aðalfundi Faxaflóahafna sf. var að vanda veitt umhverfisviðurkenning og í ár hlýtur Krónan fjörustein Faxaflóahafna.

Krónan hefur undanfarin ár markvisst unnið í verkefnum til að draga úr umhverfisáhrifum í starfi fyrirtækisins.  Krónan hefur verið með verslun á Granda síðan árið 2007 og er til fyrirmyndar á svæðinu.

Krónan hefur staðið fyrir metnaðarfullum verkefnum í umhverfismálum og frá árinu 2015 tekið stór skref í umhverfismálum og matarsóun.  Meðal þeirra verkefna sem þau hafa farið í er að hætta notkun plastburðarpoka, minnkað notkun plast umbúða, verið í samstarf um endurnýtingu plast sem fellur til við reksturinn, minnkað notkun á pappakössum og pappír, sett upp móttöku á umbúðum fyrir viðskiptavini, fengið svansvottun á allar verslanir Krónunnar og minnkað matarsóun.

Þess má geta að Krónan hefur lagt metnað sinn í að hlusta á hugmyndir sinna starfsmanna og viðskiptavina í umhverfismálum og hrint mörgum þeirra í framkvæmd.

Auk þess að vera viðurkenning á góðri frammistöðu í umhverfismálum er Fjörusteinninn jafnframt hugsaður sem hvatning fyrir þá sem hann hljóta til áframhaldandi góðra verka og er von Faxaflóahafna að þessi viðurkenning verði hvatning fyrir Krónuna um áframhaldandi starf á þessu mikilvæga sviði.

„Áhersla á umhverfismál er lykil þáttur í starfi Krónunnar og erum við því einstaklega stolt og þakklát fyrir þessa viðurkenningu Faxaflóarhafna í umhverfismálum: Fjörusteininn. Við þökkum þann árangur sem við höfum náð í umhverfismálum einlægum áhuga viðskiptavina okkar og starfsfólks sem við eigum í öflugu samtali við dag hvern. Samtal sem hefur skilað sér í þeim fjölmörgu verkefnum og aðgerðum sem hafa að markmiði að minnka umhverfisáhrif Krónunnar. Á þann hátt byggjum við saman upp grænni framtíð. Okkar bestu þakkir til Faxaflóahafna.“

Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdarstjóri Krónunnar.

Kristín Soffía Jónsdóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna afhendir umhverfisverðlaun Faxaflóahafna til Ástu Sigríðar Fjeldsted framkvæmdarstjóra Krónunnar og starfsmanna fyrirtækisins.

 

Kristín Soffía Jónsdóttir stjórnarformaður Faxaflóahafna afhendir umhverfisverðlaun Faxaflóahafna til Ástu Sigríðar Fjeldsted framkvæmdarstjóra Krónunnar og starfsmanna fyrirtækisins.

 

FaxaportsFaxaports linkedin