Faxaflóhafnir leita að hafnarverði og vigtmanni í afleysingarrstörf sumarið 2026. Starf hafnarvarðar felst í móttöku á skipum, umhirðu hafnarsvæða, afgreiðslu vatns auk annarra tilfallandi verkefna tengdum hafnarþjónustu við viðskiptavini. Starf vigtarmanns felst í umsjón með vigtun sjávarafla, skráningu upplýsinga í skráningakerfi Fiskistofu, reikningagerð og að annast hafnarþjónustu við skip og tengda aðila. Tilfallandi hásetastörf á dráttarbátum Faxaflóahafna þegar þörf er á.
Viðkomandi mun hafa starfsstöð í Reykjavík. Við hvetjum hæfileikaríkt og metnaðarfullt fólk til að sækja um starfið, óháð kyni, en fyrirtækið hefur skýra jafnréttisstefnu og vill auka fjölbreytileika í starfsliði sínu.
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar en sunnudaginn 15 febrúar 2026.
Hæfniskröfur hafnarvarðar
- Gott líkamlegt og andlegt ástand
- Góð íslenskukunnátta
- Gild ökuréttindi
- Gild vinnuvélaréttindi er kostur
- Grunnnám Slysavarnaskóla sjómanna er kostur
- Gild vigtarréttindi er kostur
Hæfniskröfur vigtarmanns
- Gott líkamlegt og andlegt ástand
- Gild ökuréttindi
- Góð íslenskukunnátta og ritun á íslensku máli
- Góð almenn tölvukunnátta
- Skipulögð og nákvæm vinnubrögð
- Gild vigtarréttindi er kostur
- Grunnnám Slysavarnaskóla sjóma
Faxaflóhafnir – Við tengjum Ísland við umheiminn
Faxaflóahafnir reka umfangsmestu hafnir landsins á starfssvæðum sínum í Reykjavík, Akranesi, Grundartanga og Borgarnesi. Fyrirtækið tengir stærsta markaðs- og atvinnusvæði Íslands við umheiminn og miðin með öruggum, grænum og skilvirkum höfnum.
Um 80 manns starfa hjá Faxaflóahöfnum sem leggur áherslu á að vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum og er í vegferð að þróa snjallar og sjálfbærar hafnir framtíðarinnar.

