Þróunarfélag Grundartanga sem Faxaflóahafnir eru stofnaðili að, Elkem, Orkuveitan, Orku náttúrunnar, Carbfix og Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um að efla loftslagsvæna atvinnustarfsemi á Grundartanga.

Markmið samstarfsins er að stuðla að sjálfbærri atvinnuuppbyggingu með áherslu á nýtingu glatvarma frá Elkem fyrir nýja og fjölbreytta starfsemi, sem og föngun og bindingu kolefnis frá útblæstri Elkem. Þá mun ráðuneytið framkvæma úttekt á lagaumhverfi og regluverki sem snýr að orkuendurnýtingu og kolefnisbindingu og meta hvort þörf sé á breytingum til að greiða fyrir uppbyggingu grænna iðngarða á Íslandi.

„Við höfum unnið lengi og markvisst að þróun græns iðngarðs hér á svæðinu og nú erum við farin að sjá það komast á framkvæmdastig. Nú þegar eru öflug fyrirtæki starfandi á Grundartanga og mikill áhugi er meðal nýrra fyrirtækja á að koma og starfa hér í samræmi við stefnu græns iðngarðs. Þar má m.a. nefna félög í magnesíumvinnslu, landeldi, grænu eldsneyti og fóðurframleiðslu. Samstarf þessara aðila styrkir verulega grunninn að því að þessi verkefni verði að veruleika á næstunni.“ – Guðjón Steindórsson, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Grundartganga

Viljayfirlýsingin er í samræmi við grænar áherslur Faxaflóahafna sem og atvinnustrefnu stjórnvalda, þar sem sjálfbær nýting auðlinda og vöxtur útflutnings í greinum með háa framleiðni eru í forgrunni. Aðilar að yfirlýsingunni munu setja á fót samráðshóp sem kortleggur sóknarfæri, áskoranir og óvissuþætti vegna verkefna á Grundartanga.

Grænn iðgnarður með hringrásarhugsun

FaxaportsFaxaports linkedin