Ár 2015, föstudaginn 16. október kom stjórn Faxaflóahafna sf. saman til fundar í fundarherbergi hafnarstjórnar í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu og hófst fundurinn kl. 08:30.
Mættir:

           Kristín Soffía Jónsdóttir

           Líf Magneudóttir

           S. Björn Blöndal

           Þórlaug Ágústsdóttir

           Ólafur Adolfsson

           Jónína Erna Arnardóttir

Varafulltrúar:

           Arnheiður Hjörleifsdóttir

           Hildur Sverrisdóttir

Áheyrnarfulltrúar:

           Ingibjörg Valdimarsdóttir

           Ragnar Eggertsson

Auk þess sátu fundinn: Jón Þorvaldsson, aðstoðarhafnarstjóri, Guðmundur Eiríksson, forstöðumaður tæknideildar  og Gísli Gíslason, hafnarstjóri, sem jafnframt ritar fundargerð.
1.     Umhverfisfrágangur á Grandagarði – umferðarmál o.fl.
Aðstoðarhafnarstjóri gerði grein fyrir þeirri tillögu sem liggur fyrir. 
2.     Endurskoðun, endurskoðunarnefnd og innri endurskoðun.
Formaður greindi frá stöðu málsins. 
3.     Skýrsla Landsbúnaðarháskóla Íslands, dags. í september 2015 um niðurstöður vöktunar á gerlamengun í höfnum Faxaflóahafna fyrir árið 2014.
Farið var yfir efni skýrslunnar og samþykkt að senda hana heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og heilbrigðiseftirliti Vesturlands til kynningar. 
4.     Erindi Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð, dags. 8.10.2015, varðandi boð um að standa að sameiginlegri yfirlýsingu um markmið í loftslagsmálum.
Stjórnin felur hafnarstjóra að undirrita yfirlýsinguna. 
5.     Samantekt varðandi erindi Þorgeirs & Ellerts hf. um framkvæmdir í Lambhúsasundi.
Lagt fram. Hafnarstjóra falið að senda samantektina til Akraneskaupstaðar og Þorgeirs & Ellerts hf. 
6.     Auglýst deiliskipulag lóðar Norðuráls ehf. á Grundartanga og drög að stafsleyfi. (umhverfisskýrsla)
Hafnarstjóra falið að gera tillögu að umsögn um breytingu á deiliskipulag og starfsleyfi. 
7.     Starf markaðs- og gæðastjóra.
Hafnarstjóri gerði grein fyrir umsóknum um starfið og stöðu málsins. 
8.     Lóðamál.

a.  Samantekt hafnarstjóra, dags. 21.9.2015, um stöðu lóðamála Hringrásar ehf. á Klettagörðum 7 og Klettagörðum 9.

b.  Erindi Stefáns Karls Stefánssonar f.h. óstofnaðs hlutafélags, dags. 12.10.2015, um lóð við Fiskislóð fyrir gáma undir grænmetisframleiðslu.

Stjórn Faxaflóahafna sf. felur hafnarstjóra að senda lóðarhafa nr. 7 við Klettagarða bréf og óska eftir áætlun um framkvæmdir á lóðinni í samræmi við skipulag með þeim fyrirvara að lóðin verði innkölluð ef ekki verður af framkvæmdum innan ásættanlegs tíma. Samþykkt að ræða frekar á næsta fundi lóðamál Klettagarða 9. 
9.     Forkaupsréttarmál.

a.  Erindi Fasteignasölunnar Nýs heimilis ehf., dags. 14. september 2015, varðandi beiðni um að fallið verði frá forkaupsrétti á Grandagarði 13 fastanr. 200-0175. Kaupandi  Sjónlag hf. kt. 451101-2770. Seljandi Ólafur Pálsson, kt. 050541-4609.

b.  Erindi Ásbyrgi fasteignasölu ehf., dags. 6. október 2015, varðandi beiðni um að fallið verði frá forkaupsrétti á Fiskislóð 47 fastanr. 222-1407. Kaupandi Hafgæði sf. kt. 510990-1539. Seljandi Stálsmiðjan-Framtak ehf. kt. 430801-2520.

Stjórnin staðfestir að fallið sé frá forkaupsrétti ofangreindra eigna með venjulegum fyrirvara um að starfsemi á lóðunum sé í samræmi við lóðaleigusamninga og deiliskipulag. OA vék af fundi. 
Fleira ekki gert,
fundi slitið kl. 10:10

FaxaportsFaxaports linkedin