Faxaflóahafnir sf. hafa fyrstar hafna á Íslandi fengið vottun fyrir umhverfisstjórnunarkerfi sitt í samræmi við alþjóða umhverfisstaðalinn ISO 14001.
Kjarni staðalsins er að vinna að stöðugum umbótum til að reyna að draga úr umhverfislegum áhrifum. Erna Kristjánsdóttir, markaðs og gæðastjóri, segir að vottunin sé mikil viðurkenning á heildstæðri umhverfisstefnu Faxaflóahafna sf. og veiti fyrirtækinu ákveðinn gæðastimpil:
„Við erum virkilega stolt af því að vera fyrst íslenskra hafna til að fá þessa alþjóðlegu vottun og er það í samræmi við þá stefnu fyrirtækisins að vera í fararbroddi í þessum málaflokki. Með vottuninni sýnir fyrirtækið ábyrgð á því að minnka umhverfisáhrif starfseminnar með því til dæmis að nýta auðlindir skynsamlega, stuðla að minnkun á útblæstri og minnka umfang sorps en farga því á ábyrgan hátt. Þannig má með öguðum og markvissum vinnubrögðum lágmarka áhrif á umhverfið að því leyti sem því verður við komið.“
Gísli Gíslason hafnarstjóri segir að umhverfismál séu eðlilegt og viðvarandi viðfangsefni Faxaflóahafna og virk umhverfisstefna eðlilegur þáttur í starfseminni. Vottunin sé í senn mikil viðurkenning á stefnu fyrirtækisins og gæðastimpill á starf þess:
„Það þarf mikið til að ná slíkum áfanga. Undirbúningur vottunar hefur tekið nokkurn tíma og ástæða er til að þakka starfsmönnum okkar fyrir að sinna verkefninu af áhuga og einurð. Enn frekar ber að þakka þeim fyrir að sýna því mikinn skilning að Faxaflóahafnir vilja í orði og verki leggja lóð sín á vogarskálar í þágu umhverfisins í eigin rekstri og út á við. Ánægjulegt er líka að vottunin er staðfest á aldarafmæli Gömlu hafnarinnar í Reykjavík.“
Faxaflóahafnir sf.

  • hafa frá árinu 2006 haldið grænt bókhald í starfsemi sinni og vaktað þar marga þætti í rekstri sínum og í sjálfri hafnarstarfseminni.
  • eru í hópi 130 íslenskra fyrirtækja sem hafa skuldbundið sig til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við Parísarsamkomulagið svokallaða og munu núna 19. september hefja skógrækt á Grundartanga til að kolefnisjafna útblástur frá eigin starfsemi.
  • styðja áskorun um bann við svartolíu í Norðurhöfum.
  • skora á íslensk stjórnvöld að setja strangari reglur um útblástur og mengun skipa í efnahagslögsögu Íslands.

Nánari upplýsingar:
Gísli Gíslason hafnarstjóri, sími 660 8966
Erna Kristjánsdóttir, markaðs- og gæðastjóri, sími 665 8766

FaxaportsFaxaports linkedin