Samgöngusamningur við Strætó hefur verið stofnaður fyrir starfsmenn Faxaflóahafna sf, þeir starfsmenn sem hyggjast nýta sér hann hafi samband við undirritaðan eða Auði, sem skrá nöfn og kennitölu í kerfi Strætó að því loknu getur starfsmaðurinn sótt um Samgöngukortið á heimasíðu Strætó, hver og einn leggur út fyrir kortinu sem kostar kr. 61.000, og fær það síðan endurgreitt gegn kvittun frá Strætó, ef vandræði eru með það getur viðkomandi haft samband við okkur.
Samgöngukortið er 12 mánaða kort á verði 9 mánaða korts og er eingöngu í boði fyrir starfsmenn fyrirtækja sem gert hafa samgöngusamning við Strætó. Kortið gildir á stór höfuðborgarsvæðinu.
Meðfylgjandi er Samgöngusamningurinn, eins og segir í honum eru einnig í boði samgöngustyrkur fyrir þá sem ferðast á hjóli eða ganga til og frá vinnu a.m.k. 80% tilvika ( fjóra daga í viku )
 

FaxaportsFaxaports linkedin