Aðalfundur Faxaflóahafna sf. var haldinn föstudaginn 26. maí 2017.  Ársskýrsla fyrir árið 2016 var lögð fram á fundinum en þar að auki var skipuð stjórn fyrir árið 2017.
Fyrir þá einstaklinga sem vilja skoða ársskýrslu Faxaflóahafna nánar, þá er hægt að fara inn á vef fyrirtækisins eða þá smella á myndina hér að neðan.
Án titils
Líkt og áður hefur verið nefnt, þá var á ársfundinum skipuð ný stjórn Faxaflóahafna og er hún úr röðum eftirfarandi fulltrúa eigenda:

Aðalmenn:
Dagur B. Eggertsson
Líf Magneudóttir
S. Björn Blöndal
Þórlaug Ágústsdóttir
Hildur Sverrisdóttir
Einar Brandsson
Björgvin Helgason
Magnús Smári Snorrason
Varamenn:
Gunnar Alexander Ólafsson
Elín Oddný Sigurðardóttir
Elsa Hrafnhildur Yeoman
Eva Lind Þuríðardóttir
Halldór Halldórsson
Ólafur Adolfsson
Arnheiður Hjörleifsdóttir
Árni Hjörleifsson

Áheyrnarfulltrúi Akraneskaupstaðar:
Ingibjörg Valdimarsdóttir

18838626_10154968807685432_2014838030_o

18836555_10154968806960432_1882830398_o18789159_10154968806985432_1598269439_o

Mættir á fundinn voru fulltrúar Landsbjargar, Björgunarsveitarinnar Ársæls, Björgunarfélags Akraness, Björgunarsveitarinanr Kjalar og Björgunarsveitarinnar  Brákar.  Fulltrúar þessara félaga ásamt fulltrúum Faxaflóahafna sf. undirrituðu þá samning um stuðning Faxaflóahafna sf. við björgunarsveitirnar til næstu fimm ára.

18767065_10154968807940432_1666696135_o

18789403_10154968808480432_812371267_o

Formaður stjórnar kynnti samþykkt stjórnar Faxaflóahafna sf. varðandi umhverfis­viðurkenningu til fyrirtækis á starfssvæði Faxaflóahafna sf., undir nafninu “Fjörusteinninn”. Hann greindi frá því að stjórnin hefði ákveðið að veita viðurkenninguna til Landhelgisgæslu Íslands og tók Georg Lárusson, forstjóri við viðurkenningunni fyrir hönd stofnunarinnar. Nánari umfjöllun um vinningshafa verður gert skil í sér frétt.

18789800_10154968330180432_561473930_o

FaxaportsFaxaports linkedin