Nú liggja fyrir bráðabirgðatölur um flutninga um hafnarsvæði Faxaflóahafna sf. árið 2015.  Í heildina varð tæp 4,0% aukning, sem aðallega er til komin vegna aukins innflutnings, en aðeins árið 2007 sýnir meiri flutninga hjá Faxaflóahöfnum sf.  Innflutningur jókst um 8,3% en útflutningur dróst saman um tæp 4% og vegur þar þyngst vörur frá stóriðju.

Prt Ace

Prt Ace


Heildar flutningar voru um 3,8 milljón tonn, þar af almennur innflutningur 3,4 milljónir tonna, útflutningur 842 þúsun tonn og við bætist landaður afli sem var alls 146.600 tonn.  Af einstökum tegundum innflutnings má sjá að innflutningur á bifreiðum, byggingavörum og eldsneyti jókst nokkuð.  Sjá má sundurliðun flutningstalna á meðfylgjandi skjali: Flutningar 2015 Samantekt_statistik

FaxaportsFaxaports linkedin