Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Faxaflóahafnir sf. hefur hlotið tvær tilnefningar á verðlaunahátíðinni DPC Awards 2017. Þetta er í annað sinn sem þessi verðlaunahátíð er haldin af IHS Markit. IHS Markit er þekkt útgáfufyrirtæki sem gefur út eftirfarandi blöð: Fairplay Magazine, Ports & Harbour, DPC Magazine og Safety at Sea Magazine.
Tilnefningarnar eru í eftirfarandi tveimur flokkum:

  • Green Port / Terminal: Fyrir að vera fyrsta höfn á Íslandi sem er með ISO 14001 vottað umhverfisstjórnunarkerfi.
  • Innovation in Port Equipment: Fyrir að vera fyrsta höfnin í heiminum sem vitað er um með myndrænt efni af hafnaraðstöðu, sjá nánar:  http://faxaports.is/

Verðlaunahátíðin verður haldin 29. nóvember 2017 í London.

 

FaxaportsFaxaports linkedin