Á dögunum voru fjórir starfsmenn kvaddir eftir samanlagt 90 ár í starfi hjá Faxaflóahöfnum sf.  Allir þessir aðilar hættu vegna aldurs.  Fyrirtækið ákvað að bjóða þessum fyrrverandi starfsmönnum á jólagleði fyrirtækisins þar sem þeim var afhentur þakklætisvottur fyrir vel unnin störf og óskað velfarnaðar í komandi framtíð.
Við þökkum þessum flottu mönnum fyrir farsælt samstarf í gegnum tíðina:

  • Erlingur Þorsteinsson, húsasmiður.  Erlingur hafði starfað fyrir rekstardeild Faxaflóahafna sf. í 19 ár.
  • Hjalti Arnarson, hafnarvörður. Hjalti hafði starfað fyrir hafnarþjónustu Faxaflóahafna sf. í 17 ár.
  • Jón Hilmar Davíðsson, hafnarvörður. Jón Hilmar hafði starfað fyrir hafnarþjónustu Faxaflóahafna sf. í 18 ár.
  • Ragnar Arnbjörnsson, vélvirki.  Ragnar hafði starfað fyrir rekstardeild Faxaflóahafna sf. í 36 ár.

20161209_185158                                     Frá vinstri: Gísli Gíslason (hafnarstjóri), Hjalti Arnarson, Jón Hilmar Davíðsson, Ragnar Arnbjörnsson og Erlingur Þorsteinsson.

FaxaportsFaxaports linkedin