Fyrsta farþegaskip ársins kemur til landsins miðvikudaginn 16. mars. Um er að ræða farþegaskipið Borealis sem siglir til Reykjavíkur og hefur viðdvöl í höfuðborginni yfir nótt. Skipið getur tekið 1.404 farþega og áhöfn í kringum 620 manns. Hins vegar munu aðeins 703 farþegar koma með skipinu í þetta sinn. Borealis er 237.7 m. langt, 32.2 m. breitt og 61.849 brúttótonn. Borealis mun koma aftur 29. mars og hafa sólahrings viðdvöl við Skarfabakka.  Aðalástæðan fyrir því að farþegaskip eru að koma á þessum tíma er aukin áhugi á norðurljósasiglingu.  Með norðurljósasiglingum opnast ný tækifæri fyrir innviði landsins og mikilvægt er að nýta á skynsaman hátt.

Alls eru bókaðar 207 skipakomur farþegaskipa til Faxaflóahafna árið 2022 með um 217.000 þús. farþega. Í mars verða tvær skipakomur, þrjár skipakomur í apríl en síðan hefjast siglingar að alvöru í byrjun maí, ef allar áætlanir standast. Síðasta skipakoma farþegaskips er áætluð í október.  Bókunarstaðan, líkt og fyrri ár, byggir á væntingum skipafélaganna að koma til Faxaflóahafna. Rauntölur síðustu tvö ár hafa hins vegar verið allt aðrar. Skipafélög eru að afbóka ferðir sínar með mánaðar til viku fyrirvara. Raunhæfari listi fyrir sumarið mun liggja fyrir í lok maí/byrjun júní.  Því hvetjum alla til að fylgjast vel með farþegaskipadagatali Faxaflóahafna á heimasíðu fyrirtækisins, því þar er hægt að sjá bókanir í rauntíma.

Þó nokkur skip munu sigla til Faxaflóahafna í fyrsta sinn árið 2022. Helst má nefna Le Commandant Charcot sem kemur frá Ponant. Skipið er hannað á þann hátt að það er með ísbrjót til að sigla á norðurslóðir. Þetta mun verða fyrsta farþegaskipið sem siglir hingað til Reykjavíkur og er knúið náttúrulegu gasi (LNG). Skipið átti að koma í fyrsta sinn árið 2021 en úr því varð ekki. Í lok ágúst mun síðan skip frá Norwegian Cruise Lines vera gefið nafn í Sundahöfn. Þetta er í annað sinn sem slíkt er gert í Reykjavík. N.G. Endurance, sem tekur í kringum 148 farþega, var gefið nafn 21. júlí 2021 við Faxagarð í Gömlu höfninni. Skipið frá Norwegian Cruise Line er hins vegar mun stærra en N.G. Endurance og áætlað er að það komið með skipinu í  kringum 2.500 farþega í þetta sinn, þó svo það geti tekið fleiri farþega. Vegleg athöfn mun verða um borð í skipinu eftir nafngiftina.

Hér að neðan má sjá lista yfir nokkur farþegaskipa sem koma oftar en einu sinni til Faxaflóahafna í sumar:

  • Fridtjof Nansen – 10 skipakomur
  • Ocean Dimond – 9 skipakomur
  • Star Pride – 7 skipakomur
  • AIDAluna – 6 skipakomur

Þau farþegaskip sem eru með flestar skipakomur á árinu eru leiðangursskip og taka þau í kringum 250 farþega. Farþegar koma yfirleitt fyrr til landsins með flugi og gista á hótelum, áður en farið er í siglingu um landið.  Leiðangursskip eru þau sem farþegaskip sem best er að dreifa um landið, því þau eru hentug í stærð og farþegafjöldi hentar mjög innviðum á landsbyggðinni.

Farþegaskipti munu aukast árið 2022, ef allar bókanir ganga eftir. Áætlað er að af þessum 207 skipakomum, verði 98 skipakomur með 51.022 farþega í farþegaskiptum sem er talsverð aukning frá fyrri árum. Þetta kallar á aðstöðubreytingar hjá Faxaflóahöfnum í Sundahöfn þar sem núverandi aðstaða er takmörkuð. Með vorinu verður sett upp bráðabirgðaaðstaða með viðeigandi tækjabúnaði við Skarfabakka til að allt gangi farsællega fyrir sig. Nú þegar hafa Faxaflóahafnir keypt 9 fríholt (fenders), málmleitarhlið og farangursskannera. Haustið 2022 verður síðan farið að huga að næstu skrefum varðandi framtíðarhúsnæði fyrir farþega og búnað við Skarfabakka.

Faxaflóahafnir mun halda vorfund þann 7. apríl varðandi farþegaskip sumarsins. Á þeim fundi er farið yfir; Skipakomur ársins, öryggismál, aðstöðumál á hafnarsvæðum, merkingar,  landamæraeftirlit og heilbrigðismál. Viðeigandi aðilar munu verða boðaðir á þann fund. Áhugasamir geta einnig haft samband við Ernu Kristjánsdóttur, markaðs- og gæðastjóra Faxaflóahafna, tölvupóstur: erna@faxafloahafnir.is

Ljósmynd: Gunnar Ingvar Leifsson

Fróðleikur um farþegaskip

Hverjir hafa tekjur af farþegaskipum?

  • Ríkið: Fær skatttekjur í formi vitagjalda og tollafgreiðslugjalda
  • Hafnir: Tekjur af hafna- og þjónustugjöldum
  • Þjónustuaðilar: Eru þeir aðilar sem þjónusta skipin beint
  • Skipaumboðsmenn: Sjá um að þjónusta skipið, annast samskipti við hafnir, opinbera aðila og innlenda birgja
  • Ferðaþjónustuaðilar: Skipuleggja ferðir fyrir skipafélögin
  • Rútufyrirtæki og leiðsögumenn:  Koma ferðamönnum á leiðarenda undir leiðsögn
  • Birgjar: Sjá um aðföng um borð í skipin
  • Aðrir þjónustuaðilar: Viðgerðir á ýmiskonar búnaði,skemmtikraftar, sorphirða o.þ.h.

Árið 2018 var framkvæmd könnun á vegum GP Wild og niðurstöður sýna að heimsóknir farþegaskipa skiluðu 16,4 milljarða eftir sig hér á landi og um 920 heilsárs urðu  til. Mörg þessara starfa verða til á landsbyggðinni, sjá nánar fréttatilkynningu á heimasíðu Cruise Iceland varðandi efnahagsleg áhrif farþegaskipa á Ísland.

Eldsneyti 

Þann 1. janúar 2020 tók í gildi reglugerð um að brennisteinsinnihald í skipaeldsneyti sem notað er hér á landi og í mengunarlögsögu Íslands má ekki vera meira 0,1% (m/m). Framangreint ber með sér að frá árinu 2020 verður tæplega mögulegt að nota svartolíu nema skip séu útbúin hreinsibúnaði og sá búnaður nægi til að brennisteinsinnihald fari ekki yfir 0,1%.

  • Umhverfisstofnun sér um allt eftirlit með að þessum reglum sé framfylgt við Ísland.
  • Þegar farþegaskip leggjast að bryggju í íslenskri höfn er slökkt á aðalvélum skipsins. Ljósavélarnar eru hins vegar áfram í gangi enda orkuþörfin mikil.
  • Öllum skipum við bryggju er skylt að nýta sér rafmagn úr landi í stað skipaeldsneytis ef það er mögulegt.
  • Það gildir auðvitað líka um stór skip eins og farþegaskip en dreifikerfi raforku eru því miður vanbúin til að veita slíka þjónustu enda kalla slík skip á háspennutengingar

Lofthreinsikerfi og úrgangur

  • Mörg farþegaskip eru með sérstakar síur til varnar því að sót berst út í andrúmsloftið.
  • Ný lofthreinsikerfi farþegaskipa hafa þá eiginleika að minnka losun brennisteinstvíoxíðs (So2) um 98 %.
  • Brennisteinstvíoxið (SO2) er algengt mengunarefni sem losnar út í umhverfið við brennslu á jarðefnaeldsneyti. Losun SO2 er langmest frá flugvélum, þar næst frá bílum en lang minnst frá skipum.
  • Sífellt fleiri farþegaskip eru útbúin sólarrafhlöðum til þess að draga úr þörfinni fyrir mengandi orkuframleiðslu.
  • Útgerðir farþegaskipa leggja metnað sinn í að skipin losi hvergi í heiminum ómeðhöndlað skólp.
  • Farþegaskip flokka allan sinn úrgang sem komið er til móttökuaðila í höfn.

Nýsköpun

  • Útgerðir farþegaskipa leggja áherslu á að endurnýja flota sinn samkvæmt bestu fáanlegri tækni.
  • Sú nýjung er komin að mörg hver farþegaskip eru knúin náttúrulegu gasi (LNG).
  • Útgerðirnar verja á annað hundrað milljörðum króna til að gera skipin umhverfisvænni, því það er orðin krafa hjá flestu löndum.
  • Spennandi möguleikar eru á að þróa nýja þjónustu og vörur fyrir farþegaskipin og gesti þeirra, auka fjölbreytni í framboði afþreyingar, skoðunarferða, hugbúnaðar og marvíslegra þjónustuþátta.
  • Þannig getur íslensk hugmyndaauðgi og nýsköpun stuðlað að enn frekari verðmæta sköpun og virðisauka þessarar ört vaxandi þjónustugreinar.

Leiðbeiningar fyrir ferðamenn

  • Þann 29. október 2018 varð Ísland hluti af starfsvæði AECO.
  • Association of Arctic Expedition Cruise Operators (AECO) eru alþjóðleg samtök rekstraraðila leiðangursfarþegaskipa og samstarfsaðila þeirra á norðurslóðum, sem helga sig umhverfisvænum, öruggum og tillitssömum rekstri skemmtiskipa. AECO hefur um 70 alþjóðlega meðlimi – þar á meðal eru 40 skiprekendur, eigendur og stjórnendur, og 50 leiðangursdarþegaskip – og er því í forsvari fyrir meirihluta þeirra sem stunda slíkan rekstur á norðurslóðum. Meðlimir AECO sigldu með alls 26.000 farþega til Svalbarða, Grænlands, Íslands, Kanada og Frans Jósefslands árið 2018. Cruise Iceland og North Atlantic Agency á Íslandi eru meðlimir í AECO.
  • Starfssvæði samtakanna nær yfir Svalbarða, Jan Mayen, Grænland, norðurhluta Kanada og norðurskautsþjóðgarðinn í Rússlandi, sem og Ísland frá árinu 2019.
  • Samtökin hafa sett saman fjölda reglna sem meðlimum þeirra er skylt að fylgja. Þar á meðal eru reglur er varða starfsemi, dýralíf, gesti, ákveðna staði og annað.
  • Árið 2019 voru gefnar út fyrstu AECO leiðbeiningarnar fyrir Seyðisfjörð.  Þær leiðbeiningar hafa verið unnar í samvinnu við hagsmunaaðila á svæðinu. Nú eru Faxaflóahafnir að vinna með hagsmunaaðilum að slíkum leiðbeiningum fyrir Reykjavík og munu þær líta dagsins ljós í maí.
  • Umhverfisstofnun er þar að auki búin að gefa út leiðbeiningar fyrir Friðlandið á Hornströndum.  Hér má sjá tilmæli til ferðaþjónustuaðila.
  • AECO ásamt Áfanga- og markaðssviði (Á&M) Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Akraneskaupstað, Faxaflóahöfnum, hagsmunaaðilum og heimamönnum á Akranesi eru nú að vinna að leiðbeiningum fyrir Akranes, sem verða uppsettar á svipaðan hátt og fyrir Seyðisfjörð. Leiðbeiningarnar eiga að vera tilbúnar í júní 2022.

Hvað eru Faxaflóahafnir sf. að gera í umhverfis- og öryggismálum?

  • Faxaflóahafnir eru með vottað ISO 14001 umhverfisstjórnunarkerfi síðan haustið 2017 og vottað ISO 45001 öryggisstjórnunarkerfi síðan desember 2019.
  • Faxaflóahafnir hafa undirritað 10 ára samstarfssamningur við Skógræktina.  Ræktaður verður skógur í nafni Faxaflóahafna í landi Klafastaða í Hvalfjarðarsveit, sem er í eigu Faxaflóahfna sf. Áætlað er að planta í kringum 1-3 hektara ár hvert til að kolefnisjafna útblástur frá eigin starfsemi.
  • Langflest farþegaskip með viðurkennt umhverfisstjórnunarkerfi njóta afsláttar af úrgangsgjaldi Faxaflóahafna sf.
  • Í samþykktri gjaldskrá Faxaflóahafna sf. fyrir árið 2018 var sett inn nýtt ákvæði til bráðabirgða um að bátar sem alfarið eru knúnir rafmagni og notaðir til skipulagðra siglinga með farþega séu undanþegnir bryggju- og lestargjaldi til ársloka 2025.
  • Landtengingar draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og annari mengun frá skipum í höfn. Árið 2016 var öllum þeim skipum sem geta tengst við höfn gert skylt að gera svo hjá Faxaflóahöfnum.
  • Ekki er hægt að landtengja farþegaskip eins og staðan er í dag.  Landtengingar farþegaskipa kalla á sér lausn vegna orkuþarfa (háspenna).
  • Faxaflóahafnir og Hafnasamband Íslands hafa skrifað undir áskorun The Arctic commitment um bann við notkun á svartolíu í Norðurhöfum.
  • Faxaflóahafnir sf. eru eitt 130 fyrirtækja á Íslandi sem hafa skuldbundið sig til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda (Parísarsamkomulagið, COP21)
  • Faxaflóahafnir sf. hafa haldið grænt bókhald frá árinu 2006. Í grænu bókhaldi eru eftirfarandi þættir vaktaðir:
    – Raforka (eigin notkun og sala),
    – Heitt og kalt vatn (eigin notkun og sala),
    – Eldsneytisnotkun eigin tækja og losun gróðurhúsalofttegunda,
    – Pappírsnotkun á hvern starfsmann,
    – Úrgangur og spilliefni, bæði frá starfsemi Faxaflóahafna sf. og annarrar starfsemi á hafnarsvæðinu ásamt úrgangi frá skipum,
    – Mengunaróhöpp sem eru tilkynningarskyld,
    – Dýpkun hafna og ráðstöfun dýpkunarefna,
    – Landfyllingar á hafnarsvæðum.
  • Faxaflóahafnir sf. hafa haldið útstreymisbókhald frá árinu 2016. Bókhaldið byggir á þeirri forsendu að útblástur skipa er reiknaður frá því að það kemur inn fyrir hafnarmörkin þangað til það fer út fyrir hafnarmörk aftur. Útblásturinn er því reiknaður bæði við siglingu skipa innan hafnar og við bryggju.

Hvað eru farþegaskipa útgerðirnar að gera í umhverfismálum, sjá nánar hér:

FaxaportsFaxaports linkedin