Gunnar Tryggvason, rafmagnsverkfræðingur hefur verið ráðinn í starf aðstoðarhafnarstjóra Faxaflóahafna.  Hann hefur störf 1. september n.k. Alls bárust 16 umsóknir um starfið.  

Gunnar er fæddur árið 1969, en hann er rafmagnsverkfræðingur. Gunnar hefur þekkingu og reynslu á rekstri, stjórnun, fjármálum og verkfræði.  Frá 2008 hefur Gunnar starfað sem fjármálastjóri og aðstoðarframkvæmdastjóri Allrahanda Gray Line ehf.   Þá starfaði hann hjá KPMG þar sem hann sérhæfði sig m.a. á sviði orku- og iðnaðarmála.

Gunnar Tryggvason verður nýr aðstoðarhafnarstjóri Faxaflóahafna sf.
Mynd af veraldarvefnum.


FaxaportsFaxaports linkedin