Undanfarin ár hafa Faxaflóahafnir sf. sett upp veglega ljósmyndasýningu á steyptum stöplum við Miðbakka. Sýningin opnar fimmtudaginn 30. maí 2019, rétt fyrir Hátíð hafsins og stendur fram að hausti. Höfundar ljósmyndasýningarinnar eru þeir Guðjóni Ingi Hauksson sagnfræðingur og Guðmundur Viðarsson ljósmyndari, en þeir hafa séð um sýninguna fyrir Faxaflóahafnir sf. undanfarin ár. Ljósmyndir eru úr einkasöfnum, Ljósmyndasafni Reykjavíkur, frá Morgunblaðinu og Þjóðminjasafni Íslands.

Við hjá Faxaflóahöfnum sf. hvetjum alla sem eiga leið framhjá höfninni í Reykjavík að skoða þessa stórfenglegu sýningu.

Sýningin í ár ber heitið:

REYKJAVÍKURHÖFN – ÞAR SEM HJARTAÐ SLÆR
               – Örlagasögur úr lífæð borgar

Um er að ræða frásagnir af viðburðum í daglegu lífi Íslendinga á árum áður. Fjallað er um merka viðburði sem höfðu áhrif til breytinga á íslenskt samfélag og einstaklinga sem þátt tóku.

Frásögn um Vesturfara sem fluttu á brott til Bandaríkjanna og Kanada í leit að nýju lífi.  Lýsing á aðstæðum þeirra um borð í skipum sem fluttu þau vestur um haf, byggt á dagbókarbrotum þess tíma. 

Koma Þjóðverja þann 8. júní 1949, þegar 130 konur og 50 karlmenn sem hingað komu á vegum Búnaðarfélagsins til hjálpar í sveitum landsins, en alls komu 314 landbúnaðarverkamenn til þeirra starfa.  Þetta var stærsti hópur útlendinga sem komið hafði til Íslands fram að þeim tíma, fyrir utan hernámslið Breta og Bandaríkjamanna. Margir settust hér að fyrir fullt og allt. Fyrir tíu árum voru afkomendur Þjóðverja taldir a.m.k. 2000 manns. Haldið er uppá 70 ára afmæli þessa viðburðar hér á landi undir heitinu: Koma Þjóðverja – Tveir heimar.

Sendiráð Þýskaland og samstarfsaðilar minnast þess með ýmsum hætti í ár að 70 ár eru liðin frá komu Þjóðverjanna til Íslands og er viðburðaröð með Anne Siegel hluti þeirrar dagskrár. Meðal samstarfsaðila sendiráðsins, auk Bókmenntaborgarinnar, eru Faxaflóahafnir, Borgarsögusafn Reykjavíkur, RÚV, Goethe stofnun í Kaupmannahöfn, Bíó Paradís og HeyIceland.

Nokkrir viðburðir verða haldnir af Þýska sendiráðinu í sumar, í tilefni að 70 ár eru liðin frá því Þjóðverjar komu til landsins, sjá nánar hér:

Þýska sendiráðið: https://www.facebook.com/DeutscheBotschaftReykjavik/

Árbæjarsafn:
http://borgarsogusafn.is/en/arbaer-open-air-museum/exhibitions/heimat-two-worlds

Afkomendur þýsku landnemanna: https://www.facebook.com/groups/2277358412585013/

Frásögn af komu Lindbergh flugkappa og Balboa flugmálaráðherra Ítalíu til landsins sem jók áhuga á flugi til og frá Íslandi.  Fánamálið er frásögn um  lítið atvik er hafði mikil áhrif á land og þjóð og flýtti fyrir sjálfstæði landsins

Sýningin er tvískipt og á minni sýningarspjöldum er fjallað um komu vísindaleiðangra til landsins og forvitinna ferðamanna þegar landið var að mestu ókannað.

Eftir komu fyrsta breska vísindaleiðangursins hingað til lands í lok 18. aldar, jókst mjög áhugi á landi og þjóð. Í kjölfarið komu fjölmargir hópar til landsins á 19. öld. Þeir vildu kynnast náttúru landsins, mannlífinu og ekki síst, fornbókmenntunum. Fjallað er um þessar heimsóknir og stuðst við bækur sem þessir ferðalangar gáfu út í heimalandinu eftir ferðina til Íslands.

Örlög þúsunda hesta sem fluttir voru út til Bretlands til að mæta örlögum sínum í kolanámum þess tíma. Að auki eru aðrar fróðlegar frásagnir sem skemmtilegt er að rifja upp. 

Það er von höfunda að sýningin sé í senn fróðleg og veki forvitni áhorfenda um að afla sér frekari upplýsinga og fróðleiks um þennan horfna tíma í sögu landsins.


Nánari upplýsingar um ljósmyndasýninguna má finna inn á vefsíðu sýningarinnar: https://myndskopun.wixsite.com/2019syning

Allar ábendingar um ljósmyndasýninguna eru vel þegnar í tölvupósti: 
midbakkisyning@gmail.com

 

FaxaportsFaxaports linkedin