Um helgina var Hátíð hafsins haldin í 18. sinn.  Hátíðarsvæðið náði frá Hörpu, gegnum Gömlu höfnina, Grandagarð og að HB Granda. Faxaflóahafnir og Sjómannadagsráð stóðu sameiginlega að framkvæmd Hátíðar hafsins 2016 og hafa frá upphafi verið meginstoðir hátíðarinnar. Veðrið lék við landsmenn þetta árið enda flykktist fólk á svæðið og tók virkan þátt í því sem þar var í boði.
Í ár voru eftirfarandi sjómenn heiðraðir:
Ásgeir Guðnason, vélstjóri
Brynjólfur Gunnar Halldórsson, skipstjóri
Haukur Sævar Harðarsson, sjómaður
Steinar Magnússon, skipstjóri
Valdimar Tryggvason, loftskeytamaður.
Sigrún Magnúsdóttir, Umhverfis- og auðlindaráðherra veitti hvatningaverðlaun til sjómanns fyrir góða umgengni um hafið. Sá sem hlaut þau var Þorvaldur Gunnlaugsson, sjómaður.  Þar að auki fékk Guðjón Kolbeinsson verðlaunin Neistann frá félagi vélstjóra- og málmtæknimanna fyrir góða umgengni og öryggi í vélarrúmi.
Ávörp fluttu:
Gunnar Bragi Sveinsson, Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Sjóminjasafnsins í Reykjavík-Borgarsögusafns Reykjavíkur
IMG_8667IMG_1777 IMG_1804 IMG_1780 IMG_1258 IMG_1261 IMG_1267 IMG_1268 IMG_1289 IMG_1305 IMG_1316 IMG_1345 IMG_1366 IMG_1375 IMG_1392 IMG_1407 IMG_1434 IMG_1453 IMG_1463 IMG_1495 IMG_1524 IMG_1538 IMG_1555 IMG_1570 IMG_1606 IMG_1737

FaxaportsFaxaports linkedin