Nýr hafnarbakki við Norðurgarð var tekinn í notkun þann 29. maí 2018, þegar togarinn Akurey AK 10 frá HB Granda lagðist að bryggju. Bakkinn er 120 m. langur stálbakki með steyptri þekju. Eldri bakki er 160 m.  Í steyptri þekju er snjóbræðslulögn sem nýtir affallsvatn frá fiskvinnslu HB Granda. Samtals kostnaður vegna framkvæmda verður kringum 335 miljónir.

Fyrir utan hefðbundnar lagnir eins og rafmagn og kalt vatn var lagt heitt vatn til að kynda skipin í landlegum.
Öll vinna vegna uppskipunar hjá HB Granda verður mun auðveldari með þessum nýja hafnabakka. Þar á bæ eru menn kampakátir.

Í framhaldi verður unnið að endurnýjun á lýsingu við hafnarbakkanum. Gert er ráð fyrir að því verki ljúki fyrir haustið.

Nýr hafnarbakki við Norðurgarð. Fyrsti togarinn til að leggjast að bryggju var Akurey AK 10 frá HB Granda.

FaxaportsFaxaports linkedin