Sjóferð um sundin hefst mánudaginn 25. apríl og mun standa til 13. maí.  Sjóferðin hefur verið í boði Faxaflóahafna sf. yfir áratug og geta skólar sótt um í þeim bæjarfélögum sem Faxaflóahafnir sf. reka hafnir.  Við skipulagningu á þessari sívinsælu sjóferð hefur fyrirtækið fengið sér til liðs tvo aðila, Fjölskyldu og Húsdýragarðinn og Sérferðir (Special Tours).

Verkefnið fer þannig fram að Fjölskyldu og Húsdýragarðurinn sendir auglýsingar um verkefnið í grunnskóla á Faxaflóahafnasvæðinu og sér um að skrá þátttöku skólanna. Samtals munu mæta í ferðina í ár 1.053 nemendur og kennarar. Fjölskyldu og Húsdýragarðurinn sér um að útvega leiðbeinendur í sjóferðirnar og annast gerð námsgagna. Sérferðir (Special tours) leggur síðan fram skipakosti (Rósin) fyrir ferðina.

Tvær ferðir verða í boði á dag:

  •    Kl. 09.30-10:30
  •    Kl. 10:40-11:40

Númer til að tilkynna seinkun/forföll er: 560-8800

FaxaportsFaxaports linkedin