Auk þess sátu fundinn: Jón Þorvaldsson, aðstoðarhafnarstjóri, Guðmundur Eiríksson, forstöðumaður tæknideildar, Vignir Albertsson, skipulagsfulltrúi og Gísli Gíslason, hafnarstjóri, sem jafnframt ritar fundargerð.
- Kjarasamningamál. Viðræðuáætlun við StRv. Viðræðuáætlun við fjögur stéttarfélög. Niðurstöður forsendurnefndar Rvb.
Lagt fram.
- Ályktun Umhverfisvakarinnar við Hvalfjörð, dags. 18.11.2013.
Lögð fram.
- Bréf skrifstofustjóra atvinnu og eignaþróunar, dags. 18.11.2013, vegna erindis Festis ehf. varðandi Kjalarvog 10 og nærliggjandi lóðir.
Lagt fram.
- Málefni Björgunar ehf.
Gerð var grein fyrir stöðu málsins og þeim viðræðum sem átt hafa sér stað við Björgun og Reykjavíkurborg um málið.
- Bréf Vatnsveitufélags Hvalfjarðar sf., dags. 21.11.2013, til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar um rekstur félagsins. Rekstraráætlun.
Lagt fram til kynningar.
- Skipulagsmál á Grundartanga. Bréf hafnarstjóra til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar um breytingar á aðalskipulagi, dags. 21.11.2013
Hafnarstjóri gerði grein fyrir nauðsyn þess að óska eftir breytingu á aðalskipulagi iðnaðar-, athafna- og hafnarsvæðisins á Grundartanga og þeim verkefnum sem unnið er að.
- Lóðaumsóknir:
- Erindi Haga hf., dags. 3.12.203, þar sem sótt er um lóðin nr. 1 við Korngarða.
- Umsókn Sverris Rafnssonar, dags. 4.11.2013, þar sem óskað er eftir úthlutun á lóðinni Fiskislóð 27. Erindi um ítrekun á umsókn, dags. 11.12.2013.
Hafnarstjórn samþykkir úthlutun á ofangreindum lóðum til umsækjenda og felur hafnarstjóra að ganga frá lóðagjaldasamningum við þá í samræmi við gildandi reglur.
- Forkaupsréttarmál:
- Erindi Fasteignasölunnar REMAX Borg, dags. 29.10.2013, varðandi beiðni um að fallið verði frá forkaupsrétti á Fiskislóð 45 fastanr. 228-4614. Seljandi Ragnar Þórisson, kt. 180471-3089. Kaupandi Hamborgarabúlla Tómasar, kt. 502905-2190.
- Erindi Smáragarðs ehf., dags. 20.11.2013, varðandi beiðni um að fallið verði frá forkaupsrétti á Fiskislóð 15-21 fastanr. 229-7256. Seljandi Smáragarður ehf., kt. 600269-2599. Kaupandi SMG 1 ehf., kt. 581113-1100.
- Erindi Smáragarðs ehf., dags. 20.11.2013, varðandi beiðni um að fallið verði frá forkaupsrétti á Skarfagarði 2 fastanr. 229-9469. Seljandi Smáragarður ehf., kt. 600269-2599. Kaupandi SMG 1 ehf., kt. 581113-1100.
- Erindi Fasteignasölunnar REMAX Borg, dags. 29.10.2013, varðandi beiðni um að fallið verði frá forkaupsrétti á Fiskislóð 45 fastanr. 228-4614. Seljandi Ragnar Þórisson, kt. 180471-3089. Kaupandi Hamborgarabúlla Tómasar, kt. 502905-2190.
Hafnarstjórn staðfestir að fallið sé frá forkaupsrétti enda uppfylli lóðarhafar skilmála lóðarleigusamninga og skipulags varðandi starfsemi.
Fleira ekki gert,
fundi slitið kl. 10:30