Sjómannadaginn ber upp þann 12. júní í ár þar sem hann er ávallt haldinn eftir hvítasunnuhelgina.

Sjómannadagurinn hefur verið kynntur sem hluti af Hátíð hafsins undanfarin ár og hafa hátíðarhöldin staðið yfir í tvo daga. Að þessu sinni verða hátíðahöldin á sjálfan sjómannadaginn og öllu tjaldað til.

Hátíðin er fjölskylduhátíð sem leggur áherslu á fróðleik um hafið og lífríki þess fyrir fólk á öllum aldri.

Það eru Faxaflóahafnir, Sjómannadagsráð og Brim sem eru bakhjarlar hátíðarinnar.

Hægt er að nálgast upplýsingar um hátíðina á vefsíðunum  sjomannadagurinn.is og  borginokkar.is/sjomannadagurinn.

FaxaportsFaxaports linkedin