Faxaflóahafnir sf. taka þátt í verkefni með Íslenska sjávarklasanum þar sem ungu háskólafólki er gefinn kostur á að vinna að rannsóknarverkefnum varðandi sjávarútveg.  Eitt af þeim verkefnum er að leggja mat á umfang sjávarútvegs á athafnasvæði Faxaflóahafna sf. og skoðun á umfangi og áhrifum atvinnugreinarinnar á svæðinu.  Nú liggur fyrir skýrsla ungs hagfræðinema, Ásgeirs Friðriks  Heimissonar, en skýrsluna vann hann á vordögum.  skyrsla-forsida
Niðurstöður Ásgeirs Friðriks eru um margt fróðlegar og einsýnt að áhrif sjávarútvegs á starfssvæði Faxaflóahafna sf., þ.e. í Reykjavík og á Akranesi, eru veruleg.  Helstu niðurstöður hans eru eftirfarandi:
 

1. Beint framlag sjávarútvegsfyrirtækja í Reykjavík og á Akranesi árið 2011 var 19,3% af beinu framlagi sjávarútvegs á landsvísu.

2. Heildarumfang sjávarútvegsfyrirtækja í Reykjavík og á Akranesi árið 2011, þ.e. bein og óbein áhrif og eftirspurnaráhrif meðtalin, var 19,5% af heildarumfangi sjávarútvegs það ár.

3. U.þ.b. 70% af óbeinu framlagi sjávarútvegs var myndað í Reykjavík árið 2011.

4. Hlutfall sjávarútvegs af landsframleiðslu í Reykjavík og á Akranesi árið 2011 var 5,1%.

5. Árið 2011 var 12,9% af afla Íslendinga landað í Reykjavík og á Akranesi, þar af 20,2% af botnfiskafla.

6. Afli sem hlufall þorskígilda sem landað var í Reykjavík og á Akranesi árið 2011 var 18,6% af heildarafla í þorskígildum.

7. Aflamark stærstu sjávarútvegsfyrirtækja í Reykjavík og á Akranesi fyrir fiskveiði árið 2011/2012 var 17,3% af úthlutuðu aflamarki í þorskígildium.

8. Útflutningur sjávarafurða frá Reykjavík og Akranesi sem hlutfall af heildarútflutningi sjávarafurða voru árið 2011 37,5%.

9. Um 1.900 manns starfa beint við sjávarútveg á höfuðborgasvæðinu sem er 21,1% af þeim sem starfa beint við sjávarútveg á landinu.

10. Í heild voru u.þ.b. 12.800 til 19.800 störf sem mynduðust á stór höfuðborgasvæðinu vegna starfsemi sjávarútvegs árið 2011.

Um leið og Ásgeiri Heimi er þakkað framlag hans og vinna þá má sjá skýrslu hans HÉR.

FaxaportsFaxaports linkedin