Nemendur einbeittir við námið…

Dagana 10 – 12 október er haldið hjá Faxaflóahöfnum námskeið í notkun og beitingu dráttarbáta.

Fulltrúi frá Damen skipasmiðjunum í Hollandi og reyndur dráttarbátaskipstjóri frá Rotterdamhöfn sjá um fræðslu.

Fyrirlestrar og bókleg kennsla verða fyrir hádegi og eftir hádegi verklegar æfingar á dráttarbátum Faxaflóahafna.

Starfsmenn margra hafna á landinu mæta auk hafnaþjónustumanna Faxafóahafna. Akureyri, Ísafjörður, Fjarðabyggð, Hafnarfjörður, Vestmannaeyjar og Þorlákshöfn senda menn á námskeiðið

FaxaportsFaxaports linkedin