Heildar skemmtiferðaskipakomur í höfnum Faxaflóahafna í ágúst 2023 voru 69 alls og þar af var 1 skipakoma til Akranes. Meðaltals Environmental Port Index (EPI) umhverfiseinkunn af þeim komum voru 39 stig. 67% af skemmtiferðaskipakomum 2023 hafa fengið hærri EPI einkunn en 30 stig og hæsta einkunn sem skip hefur fengið í ár er 90 stig.

EPI er verkfæri sem gerir höfnum kleift að skilgreina umhverfisspor skemmtiferðaskipa á meðan viðkomu stendur. Markmiðið er að koma á fjárhagslegu hvatakerfi til umhverfisvænni og sjálfbærari rekstrar skemmtiferðaskipa og draga þannig úr ávinningi við að koma til hafna Faxaflóahafna með mengandi skip.

Skemmtiferðaskipum ber að skila inn gögnum til mats á umhverfisframmistöðu í höfn eigi síðar en 72 klst. eftir brottför. Á grunni þeirra gagna fær hvert skip EPI einkunn milli 0 (verst) og 100 (best). Skili skip ekki inn gögnum fær það sjálfkrafa 0 einkunn. EPI einkunn veitir að hámarki 17,5% afslátt af bryggjugjöldum og að hámarki 75% álag.

FaxaportsFaxaports linkedin